Morgunblaðið - 10.05.2001, Síða 45

Morgunblaðið - 10.05.2001, Síða 45
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2001 45 skiptin sem ég skoðaði hana. Bið- röðin úti gat löngu áður en hleypt var inni á morgnana náð þvert yfir allt svæðið fyrir framan höllina, á stundum viðlíka grúi við miðasöluna inni. Segir nánar frá framningnum og fleiru í afmarkaðri samantekt. Annað sem helst vekur eftirtekt og hefur forgang er farandsýningin, Picasso érotoque, á gamla impressj- ónistasafninu, Jeau de Paume, við enda Tuilieries-garðsins. Er að renna sitt skeið, lýkur á staðnum 20. maí, opnar svo í Fagurlistasafn- inu í Montreal 14. júní og stendur til 16. september, loks í Picasso- safninu í Barcelona 15. október og verður þar til 27. janúar 2002. Liðin sú tíð að þessi hlið skapandi at- hafna var mikið feimnismál, jafnt í uppsláttarbókum sem ævisögum listamanna, má þó vera borðleggj- andi að án æxlunar og frjósemi þró- ist ekkert líf, hvorki í list né mann- heimi. Þótt lítil væri biðröðin var stöðugur straumur fólks í húsið og öllu auðveldara að virða fyrir sér bakhluta gestanna en myndirnar á veggjunum. Í Borgarlistasafninu, Museum Carnvalet, í Mýrinni er m.a. sýn- ishorn málverka er voru á deild Ameríku á heimssýningunni í París 1900, ekki par nútímaleg, en gull- fallegt málverk eftir Winslow Hom- er (1836–1910) af tveim konum að dansa í tilþrifamiklu landslagi, vel þess virði að tilla þar tá. Í stóru höllinni, Grand Palais, einmitt byggð til að hýsa listir á nefndri heimssýningu, var einnig mikið um að vera þá mig bar að seinni hluta mánudags, þó ekki væru biðraðir á framkvæmdirnar tvær sem sem sá hluti hallarinnar sem ekki er í endurnýjun hýsir að þessu sinni. En mikið varð ég undr- andi yfir mannfjöldanum á sýning- unni Ítalskt landslag frá 1780–1830, sem tekur fyrir upphaf nýrri tíma landslagsmyndahefðar hvað ítalskt landslag snertir. Ekki einungis heimamálara heldur einnig franskra, enskra og skandinavískra og hér áttu gullaldarmálararnir dönsku frábæra hluti. Þarna eru einnig til sýnis 120–40 ára gamlar uppgerðar ljósmyndir af ítölsku landslagi og margar frábærar, þótt sumar séu teknar af alls óþekktum ljósmyndurum. Seinni tíma lands- lagshefð í málverki er þannig ekki eldri, og nærtækasta skýringin á mannfjöldanum þótt engin væri biðröðin, er að gestunum dvelst yf- irleitt lengi innan dyra og skoða vel, engin verk sem framkalla bros út í annað munnvikið og halda svo áfram. Um afburða fallega og áhugaverða framkvæmd að ræða, sem felur í sér mikinn lærdóm um samhengið í listþróuninni og hollt að skoða í ljósi íslenzkrar landslags- hefðar. Það var líka óvænt að ekki var nein biðröð á yfirlitssýningu eins helsta meistara deplamálverks- ins, Paul Signac (1863–1935), þó drjúgur mannfjöldi væri þar fyrir, einkum vegna þess að mjög vel hef- ur verið látið af henni í heimspress- unni. Mjög rúmt er um sýningar- tímann á staðnum, en báðar sýningarnar eru opnar frá 10–20 dag hvern og 22 einu sinni á viku. Þá virðist þessi tími dags einhverra hluta vegna vænlegur til heimsókna á stórsýningar í borginni, í öllu falli á mánudögum. Gagnlegar upplýs- ingar, því ég veit gömul sem fersk dæmi um að landinn hefur hrökkl- ast burtu úr slíkum biðröðum. Beauborg er hins vegar opin frá 11–18 og lokað á þriðjudögum, sem ásamt mánudegi er almennur lok- unardagur safna í borginni, einnig Louvre. Það varð svo til þess að ég kom að lokuðum dyrum á Louvre á þriðjudegi, en skoðaði í stað þess hönnunar- og klæðasafnið, Musée des Arts Decorativs, en inngang- urinn er nær endamörkum sömu álmu byggingarinnar sem snýr að Rue de Rivoli. Hálfri endurgerð safnsins er lok- ið, rúmar klæða- og tízkusafnið, og eru þar jafnaðarlega frábærlega vel upp settar og markverðar sýningar. Svo er einnig að þessu sinni og nefnist aðalframkvæmdin Jouer la lumiere eða ferðalag í ljósinu. Hef- ur með efnisgerð í klæðnaði fyrri alda að gera, og þróunina fram á daginn í dag. Í gegnum misstóra hringlaga glugga á sýningarbásun- um birtist sýningargestinum herra- og kvenfatnaður sem stigmagnandi ljós leikur um, á stundum í ýmsum litum. Snilldarlega dregið fram hversu bróderíið á fatnaðinum var mikið nákvæmt og flókið ferli á öld- um áður, helst að það minni á stíg- andinn í skrifum Proust. Á stórum hringlaga borðum eru svo sýnis- horn af efnum notuðum til klæða- gerðar í aldanna rás, frá náttúru- og eðalefnum til gerviefna nú- tímans. Á efri hæðinni er framn- ingur er hefur með almenna brúks- hluti að gera og fyrri tíma auglýsingar á þeim ásamt og ýms- um viðburðum í skemmtanalífinu. Til þessa voru gamlar uppgerðar kvikmyndir óspart notaðar og á skjám mátti sjá fyrri tíma stjörnur eins og t.d. hinn kaldhæðna Michel Simon og brosmilda Fernandel sem var þar að mæra austurlenzka vind- linga á sinn glaðbeitta ærslafulla hátt. Jósefínu Baker íklædda ban- önum einum saman hrista brjóst, bossa og banana að bergnumdum áhorfendum. Þessar löngu horfnu heimsstjörnur hvíta tjaldsins Simon og Fernandel í miklu uppáhaldi á árum áður voru þarna yngri en ég man eftir þeim á tjaldinu sem minnti mig óþyrmilega á hjól tím- ans. Mikið af ungu áhugasömu fólki á sýningunum, sem skemmti sér einkum konunglega á efri hæðinni. Vert að minna á að á efstu hæð er jafnaðarlega uppi lítið en mikils- háttar sýnishorn af kirkjulist mið- alda. Næst var að fara yfir Signu og í Orsay-safnið, en til 12. júlí eru þar í gangi sýningar á æviferli leik- skáldsins, þjóðernissinnans öfga- fulla og spjátrungsins Gabriele d́Annuzio (1863–1938), svo og hönn- uðarins fjölhæfa Carlo Bugatti (1856–1940), báðar yfirmáta fróð- legar. Einnig á ítalskri myndlist frá tímabili táknsæisins til framtíðar- stefnunnar, fútúrismans, (til 12. júlí). Þá eru neoimpressjónistarnir sérstaklega í sviðsljósinu sem teng- ist í og með sýningunni á verkum fyrrnefnds Paul Signac í Stóru höll- inni. Sögunni er þannig sýnd óvenju mikil og víðfeðm ræktarsemi í París um þessar mundir og vilji ferða- langurinn fræðast enn frekar mæli ég með innliti í allar kirkjur sem á vegi verða. Á leið minni frá Orsay- safninu, um breiðötu Geira á Engi og í listahúsahverfið í nágrenni Signugötu, Rue de Seine, kom ég í fyrsta skipti við í Basilíku Tomas de Aquin og enn einu sinni í kirkju St. Germain des Prés og hafði mik- ið gott af. Sunnudagsmorguninn áð- ur hafði ég lagt leið mína stefnu- laust um Les Halles-hverfið og nágrenni, kom þá við í tveim kirkjum, St. Eustache og Basilíku Notre-Dame des Victoires, í báðum þeirra var sitthvað um að vera sem gerði innlitið litríkara. En það sem helst festist í minnið var skreyting núlistamannsins Johns Armleders í einum helgibás St. Eustache í formi ljósakross fyrir miðju og örmjórra litalækja á veggjunum til begga hliða. Í hinu fornlega og þunga um- hverfi var hún einstaklega látlaus og áhrifarík, vakti enda óskipta at- hygli langt að kominna kirkju- gesta…
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.