Morgunblaðið - 10.05.2001, Side 50

Morgunblaðið - 10.05.2001, Side 50
MINNINGAR 50 FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ S íst stendur á mér að taka upp hanskann fyrir íslenskar píkur enda á ég sem ís- lenskur karlmaður nokkurra hagsmuna að gæta. Ís- lenskar píkur eru sjálfsagt full- færar um að svara fyrir sig sjálf- ar og varasamt fyrir karla að voga sér langt inn á það um- ræðusvæði þar sem hættan á að vera felldur sem remba leynist við hvert fótmál. Upphafssetn- ingin hér að ofan er reyndar dæmigerð fyrir karl einsog mig. Í henni felst hæfileg remba með orðaleiknum „stendur á mér“ til að kitla hláturtaugar rembings- karla sem kunna að hafa fallið fyrir fyrirsögninni og síðan er niðurlag setningarinnar til þess fallið að blíðka rembingskonur sem hafa þykkst við fyrrihlut- anum. Hlut- skipti smá- rembukarla eins og mín er um margt dálítið erfitt í þessu svokallaða kynréttindasamfélagi. Útávið reynum við auðvitað að vera eins rétthugsandi og þurfa þykir, en erum inn við beinið dá- lítið uppteknir af píkum, rössum og brjóstum á fremur hefðbund- inn og gamaldags hátt. Við erum svo meðvitaðir. Við erum alltaf að passa að koma ekki upp um okkur. Horfum bara eitt augna- blik á brjóstin á kvenkyns við- mælanda. Skoðum bara á henni rassinn þegar öruggt er að eng- inn sér til. Erum svo kurteisir að klæða hana ekki alveg úr öllu í huganum. Höfum myndað okkur mjög ákveðna skoðun á því hvernig eigi að tala við konur til að sýna þeim tilhlýðilega virð- ingu. Umgangast þær fyrst og fremst sem manneskjur og per- sónur, ekki sem kynverur. Slökkva á öllu í okkur sjálfum sem gæti heitið kynferðislegur áhugi. Það gæti lagst út sem kynferðisleg áreitni. Og kannski er það áreitni. Hvað veit ég. Við erum svo óöruggir með hvar mörkin liggja í þeim efnum. Tilefni þessara óbjörgulegu vangaveltna er sýningin Píku- sögur í Borgarleikhúsinu. Hún reyndist rembingskarli eins og mér talsverð upplifun. Þar er orðið „píka“ nefnt upphátt 128 sinnum. Og alltaf í merkingunni kynfæri kvenna en ekki sem skandinavískt slangur yfir stelpu. Þá eru ýmis önnur orð um kynfæri kvenna nefnd til sögunnar en aðalorðið er píka. Merkjanlegur árangur þessarar sýningar er hversu oft þetta orð hefur heyrst og sést síðan frum- sýningin átti sér stað; sjálfur hef ég t.d. aldrei notað orðið fyrr í texta af þessu tagi en frelsaðist svo við sýninguna að mér finnst sjálfsagt að nota það að vild. Píka. Ég hika ennþá við önnur grófari orð enda eru þau flest neikvæð dæmi um karlrembu þar sem reynt er að gera lítið úr konum og kynfærum þeirra. Píkusögur gera alveg hið gagn- stæða. Þær upphefja konur og kynfæri þeirra á einhvern hátt sem mér karlmanninum var alls ekki ljóst áður; hugsun kvenna snýst kannski ekki minna um kynfæri sitt en karla um sitt, þó á mismunandi hátt sé. Margt er ólýsanlega fyndið í þessari sýn- ingu og fyrir karl eins og mig var það talsverð raun að sitja á hlátri mínum þar til öruggt var að fleiri myndu hlæja en ég. Karlar verða nefnilega vand- ræðalegir þegar konur tala op- inskátt um kynfæri sín og hug- myndir um kynlíf. Ekki síst í opinberri leiksýningu. Þeir óttast líka ekkert meira en að vera teknir fyrir. Að hlæja upp úr eins manns hljóði á Píkusögum gæti þýtt að leikkonurnar hvesstu á mann augun og segðu háðslega: „Af hverju finnst þér þetta svona fyndið.“ Þær gera það reyndar ekki því sýningin er jafnniðurnjörvuð og hver önnur leiksýning en formið á henni er þannig að fyrsta korterið er maður ekki alveg viss hvort óhætt sé að afhjúpa fordóma sína með flissi og hlátrasköllum. En sýning eins og Píkusögur er einmitt til þess fallin að afhjúpa fordóma og bjóða síðan upp á umræður um þá í framhaldinu. Endurskoðun á viðteknum hug- myndum og viðhorfum. Reynslu- heimur kvenna fékk loks áþreif- anlega merkingu í huga mínum. „Þær hugsa þá svona,“ hugsaði ég en er samt ekki meira en svo viss um að ég hafi skilið þetta rétt. Saga konunnar frá Bosníu er ein sú átakanlegasta sem ég hef heyrt og undirstrikaði tvenn- an skilning; annars vegar á gleði hinnar ungu konu yfir líkama sínum og þörf sinni til að njóta kynlífs og ásta. Hins vegar þeirri skelfilegu martröð sem fólgin er í nauðgun og svívirðingu á kon- unni og kynfærum hennar. Karl- ar eiga sennilega margir hverjir nokkuð erfitt með að setja sig í spor kvenna varðandi nauðgun. Hér gefst tækifæri til þess og líklegt að skilningur þeirra vaxi á því hversu yfirgengilegt ofbeldi felst í nauðgun. Eins og að líkum lætur eru margir lítið hrifnir af því að pík- unni sé gert svo hátt undir höfði á svo greindarlegan og skyn- samlegan hátt og gert er í Píku- sögum. Þeir – bæði konur og karlar – eru auðvitað fólkið sem hefði mest gagn af því að sjá sýninguna þar sem líklegt er að fordómar þess og kreddur myndu undan láta. Sumir eru svo krepptir í kynferði sínu að þeim er ómögulegt annað en tala um píkur og typpi á klámfenginn hátt og fela kreppu sína á bakvið yfirborðshneykslan á því að skrifað skuli heilt leikrit um kyn- færi kvenna. Eða hversu mörg leikrit hafa ekki verið skrifuð um karla sem eru með píkur á heil- anum og kynhvöt þeirra er drif- kraftur verksins. Það þykir flest- um sjálfsagt enda er kynhvötin – bæði karla og kvenna – drif- kraftur lífsins sjálfs. Þetta hefur þó hingað til þótt sjálfsagt karla- vígi. Að konur skuli tala um pík- ur sínar á jafnopinskáan hátt og gert er í Píkusögum er ekki ein- asta djarft heldur kjarkað og verður vonandi til þess að hvetja fólk til umhugsunar og umræðna um þetta viðkvæma en sjálfsagða efni. Þegar svona vel tekst til hefur leikhúsið gegnt hlutverki sínu í samfélaginu með sóma. Sögur af píkum „Að konur skuli tala um píkur sínar á jafnopinskáan hátt og gert er í Píkusögum er ekki einasta djarft heldur kjarkað.“ VIÐHORF Eftir Hávar Sigurjónsson havar@mbl.is ✝ SigurhjörturPálmason fædd- ist í Reykjavík 29. janúar 1926. Hann varð bráðkvaddur að heimili sínu, Vestur- bergi 27, hinn 28. apríl síðastliðinn. Sigurhjörtur var elsta barn foreldra sinna, þeirra Pálma Einarsonar, fv. land- námsstjóra, f. 22.8. 1897, d. 19.9. 1985 og Soffíu Sigurhelgu Sigurhjartardóttur húsfreyju, f. 23.4. 1899, d. 19.8. 1990. Föðurforeldar Sigurhjartar voru Einar Guð- mundsson, bóndi á Svalbarði, Mið- dölum, f. 28.6. 1857, d. 21.3. 1947, og Sigríður Pálmadóttir frá Sval- barði, f. 27.9. 1859, d. 22.8. 1958. Móðurforeldrar voru Sigurhjörtur Jóhannesson, bóndi að Urðum í Svarfaðardal, f. 6.2. 1855, d. 30.1. 1926, og Friðrika Sigríður Sigurð- ardóttir á Þóroddsstað í S-Þingeyj- arsýslu, f. 10.5. 1858, d. 30.4. 1914. Sigurhjörtur átti sjö systkini, en tvö þeirra, Jósef Pálmar og Auður, létust í æsku. Eftirlifandi systkini Sigurhjartar eru 1) Anna, f. 2.12. 1928, maki Guðmundur Guð- mundsson, f. 10.5. 1922, börn þeirra; Pálmi Örn, látinn, Einar Már, Guðmundur Hrafn og Auður. 2) Haukur, f. 7.2. 1930, maki Að- alheiður Jóhannesdóttir, f. 9.2. 1931, d. 15.6. 1997, börn þeirra; Anna Soffía, Jóhannes og Helga. 3) Hreinn, f. 26.11. 1931, maki Sig- urlaug Vigfúsdóttir, f. 23.7. 1936, hófu búskap á Hofteig og fluttu síðar á Háaleitisbraut 38 þar sem þau bjuggu í nítján ár en síðustu átján árin hafa þau búið í Vestur- bergi 27. Sigurhjörtur fæddist í Búnaðar- félagshúsinu við Vonarstræti og ólst upp á Hvaleyrarholtinu í Hafn- arfirði, Urðum við Laugardal, þar sem Sólheimar eru núna, Rauðar- árstíg og á Laugateig. Sigurhjört- ur gekk í Laugarnesskóla og síðar í Ingimarsskólann í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1946, fyrrihlutaprófi í verkfræði frá HÍ 1950 og prófi í byggingar- verkfræði frá DTH í Kaupmanna- höfn 1953. Hann var verkfræðing- ur hjá mælingadeild bæjarverk- fræðings 1953-1961. Frá árinu 1961 til 2000 vann hann að verk- fræðistörfum fyrir borgarverk- fræðing og verkfræðistofuna For- verk sem hann gerðist síðar meðeigandi að. Sigurhjörtur starf- aði fyrir mörg sveitarfélög, meðal annars Reykjavík, Garðabæ og Sauðarkrók. Meðal verkefna sem hann fékkst við voru landmæling- ar og lóðauppdrættir, rannsókn lóðarmarka og söfnun gagna um eignarhald í eldri bæjarhverfum, hönnun gatna, vatnsveitna og frá- veitna í þéttbýli, ráðgjöf við gerð skipulags fyrir bæjar- og sveitar- félög, landamerkjarannsóknir, söfnun gagna um landamerki og eignarhald, skráning lands, mæl- ingar og gerð uppdrátta. Um ára- mótin 1997 seldi Sigurhjörtur sinn hlut í Forverki ehf., þegar Línu- hönnun hf., LH tækni og Sigurður R. Ragnarsson keyptu fyrirtækið. Sigurhjörtur starfaði áfram hjá Forverki og endaði þar starfsferil sinn um áramótin 1999-2000. Útför Sigurhjartar verður gerð í dag frá Bústaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. þau skildu, börn þeirra; María, Soffía og Signý. 4) Friðrik Pálmar, f. 16.4. 1935, maki Karóla Sander, f. 1.2. 1935, börn þeirra; Nanna og Ragnar. 5) Sigríður, f. 25.11. 1938, maki Kristján Sæmundsson, f. 9.3. 1936, börn þeirra; Trausti, Margrét og Þorbjörg. Hinn 20. september 1961 kvæntist Sigurhjörtur Unni Guðmundu Vil- hjálmsdóttur, f. 2.7. 1935. Hún starfaði sem verslunar- maður og síðar skrifstofumaður hjá fjármáladeild Reykjavíkur- borgar. Foreldrar Unnar eru Arn- grímur Vilhjálmur Angantýsson, f. 15.11. 1906 á Snæfjöllum á Snæ- fjallarströnd í N-Ísafjarðarsýslu, d. 16.8. 1984, og Aðalbjörg Júlíus- dóttur, f. 20.1. 1914 á Seyðisfirði. Synir Sigurhjartar og Unnar eru Vilhjálmur Örn, viðskiptafræðing- ur, forstöðumaður hjá Landssíma Íslands hf., f. 16.3. 1962, og Pálmi Jósef, tónlistarmaður, f. 25.10. 1965. Maki Vilhjálms er Sigríður Auður Arnardóttir, lögfræðingur í umhverfisráðuneytinu, f. 12.6. 1965, þeirra barn er Unnur Svala, f. 4.11. 1996. Sambýliskona Pálma er Sigrún Sól Ólafsdóttir leikkona, f. 31.8. 1968, þeirra barn er Sig- urhjörtur, f. 2.12. 1998. Systkini Unnar eru Angantýr, f. 15.9. 1938, Elsa, f. 5.11. 1942, Júlíus Haf- steinn, f. 7.3. 1944, og Guðrún, f. 12.3. 1947. Unnur og Sigurhjörtur Elsku pabbi, það eru svo ótal margar minningar sem leita á hug- ann þegar litið er til baka. Minn- ingar frá bernskuárum yfir í ung- lingsárin og fram á fullorðinsár, minningar sem bregða upp myndum af ekki bara yndislegum pabba held- ur einnig góðum vini og félaga sem setti sig alltaf inn í hugðarefni okkar og áhugamál hvers tíma og studdi okkur í því sem við tókum okkur fyr- ir hendur. Við bræður teljum okkur lánsama að hafa átt svona mikinn mannkostamann sem pabba, pabba sem alltaf hefur verið til staðar fyrir okkur, og ásamt mömmu gefið okk- ur gott veganesti út í lífið, heilbrigða og skynsama sýn á lífið og tilveruna. Elsku pabbi, takk fyrir að hafa gefið börnunum okkar, Unni Svölu og Sigurhirti, svona mikla ást. Miss- ir þeirra er mikill, en við munum halda minningu þinni á lofti um ókomin ár, minningu um yndislegan pabba og afa sem við geymum í hjarta okkar að eilífu. Þínir synir, Vilhjálmur og Pálmi. Það var á sérstaklega fallegum degi, sumarið 1990, sem ég hitti hann tengdaföður minn, Sigurhjört, fyrst. Minningin um fyrstu kynni mín af Sigurhirti og eiginkonu hans, Unni, hefur verið skýr í huga mínum síðustu daga. Þau hjónin voru að brjóta saman þvott og þegar ég birt- ist í dyragættinni brostu þau svo hlýlega og fallega til mín og ég fann um leið að ég var velkomin í þeirra líf. Þessi minnig er svo einkennandi fyrir Unni og Sigurhjört, þessi hlýja, brosmildi og samheldni. Þau hjónin gerðu alla hluti saman, hvort sem það voru húsverkin, tiltektir í garð- inum eða innkaupin. Þau voru hvort öðru svo næg og þeim leið best heima í Vesturbergi að dunda sér og tala saman. Sigurhjörtur hafði mjög ljúfa skapgerð og var hógvær og lít- illátur maður. Hann gerði ekki mikl- ar kröfur fyrir sig sjálfan, hallmælti engum og ekki var hann með reiði eða beiskju út í annað fólk. Sigur- hjörtur tók einfaldlega öllum eins og þeir voru og virti skoðanir hvers og eins, þó hann væri kannski ekki endilega sammála orðum og gerðum annarra. Það skipti hins vegar engu máli, því það var virðingin fyrir öðru fólki sem hann hafði í heiðri og allir menn voru jafnir fyrir honum. Það var svo gott að finna hvernig hann tók á vandmálum, þau hreinlega gufuðu upp og urðu að engu. Ég hef oft velt því fyrir mér hvernig hann færi að því að takast svona vel á við það sem erfitt er. Ég held að svarið sé fólgið í því að hann gerði sér svo vel grein fyrir því hvað það er sem skiptir máli í þessu lífi, þ.e. að lifa í sátt við sjálfan sig og aðra og bera kærleika til annars fólks. Sigur- hjörtur náði þessum þroska, sem mörgum reynist erfitt og sem gerði hann að þessum einstaka manni sem hann var. Ég hef oft sagt við mann- inn minn hversu heppinn hann væri að eiga slíka foreldra og aldrei hafði hann séð pabba sinn skipta skapi öll þau ár sem þeir áttu saman. Það var líka svo augljóst hversu mikla vænt- umþykju og ást hann bar í garð pabba síns. Það var mikið samband haft við mömmu og pabba bæði til að láta vita af sér og til að vita hvar þau væru og hvað þau aðhöfðust. Sigurhjörtur var mikill fjölskyldu- maður og alltaf voru þau hjónin til staðar þegar á þurfti að halda. Það þurfti ekki biðja um hlutina, þau komu ávallt þegar þau vissu að þeirra hjálpar væri þörf. Sigurhjört- ur fylgdist af áhuga með öllu því sem strákarnir hans og fjölskyldur þeirra tóku sér fyrir hendur og tók þátt í lífi þeirra á sinn hógværa hátt. Dóttir mín, Unnur Svala, var fyrsta barnabarnið, síðar bættist við annað barnabarn, Sigurhjörtur, sonur Pálma og Sigrúnar, alnafni afa síns. Unnur Svala var afar hænd að afa sínum og hann var henni afar kær frá fyrstu tíð. Hún vildi helst vera í fanginu á afa, þar var best að vera. Afi hafði alltaf nægan tíma henni til handa hvernig sem stóð á, önnur verkefni fengu bara að bíða, enda skiptu þau engu máli þegar hún var annars vegar. Þess sama fékk Sig- urhjörtur yngri að njóta. Það var margt sem afi og Unnur Svala bröll- uðu saman, afi átti að gera hlutina, það var best, hvort sem það var að lesa, teikna eða búa til kakó, afakakó eins og hún kallar það. Ég man hversu glöð hún varð alltaf þegar afi kom í heimsókn, það birti yfir andlit- inu sem varð síðan að einu brosi og hún réð sér ekki fyrir kæti. Sama viðmót fékk hún frá afa, hann varð eitt bros þegar hann sá hana, þeim leið svo vel saman. Síðustu samveru- stundir þeirra voru skömmu fyrir andlát afa, leikskólinn var lokaður vegna viðgerða og það urðu mikil fagnaðarlæti þegar Unnur Svala vissi að hún fengi að fara upp í Vest- urberg til ömmu og afa. Það var vel tekið á móti henni eins og alltaf og hún var svo kát. Þegar við foreldr- arnir komum svo að ná í hana að af- loknum vinnudegi, var svo gott að finna hversu glöð og sátt hún var eft- ir daginn. Það kom ekki á óvart, hún hafði átt enn einn dag í þessari miklu ást og hlýju sem hún alltaf fann hjá ömmu sinni og afa. Þegar ég fékk fregnirnar af and- láti Sigurhjartar, fann ég sárast fyr- ir missinum vegna dóttur minnar. Nú fengi hún ekki lengur að njóta samvista við afa sinn og hann gæti ekki tekið þátt í þroska hennar og séð hana vaxa úr grasi. Það var svo mikill tími sem mér fannst við fjöl- skyldan eiga eftir að njóta með Sig- urhirti. Þessi tilfinning sem var svo óumflýjanleg breyttist síðan í þakk- læti fyrir að hafa átt því láni að fagna að eiga slíkan tengdapabba og afa, þakklæti fyrir hvað afi gaf henni dóttur minni mikið og að því mun hún sannarlega alltaf búa. Það var á sólríkum vordegi, heima í Vestur- bergi, sem Sigurhjörtur kvaddi. Elsku Unnur, Guð gefi þér styrk til að takast á við þinn mikla missi. Elsku afi og tengdapabbi, við þökk- um þér fyrir allt sem þú hefur gefið okkur. Megi minningin um sóma- mann lifa í hjörtum okkar sem sökn- um og hjálpa okkur að takast á við lífið eins og hann gerði. Sigríður Auður og Unnur Svala. Sigurhjörtur tengdafaðir minn er látinn. Hann var frá okkur tekinn á sólríkum apríldegi, skyndilega, án nokkurs fyrirboða, var hann hrifinn burt. Apríl er grimmastur mánaða. Við erum lokkuð með fyrirheitum um bjartari daga, hlýindi og sólríki, en svo hellist myrkrið yfir, það kóln- ar skyndilega og napur vindur nístir inn að beini. Afi sonar míns tók á móti vorinu með gleði í hjarta, hann sneri andliti í átt til sólar og brosti sínu hlýja, einlæga brosi þegar hann kvaddi okkur í síðasta skipti. Hann SIGURHJÖRTUR PÁLMASON

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.