Morgunblaðið - 10.05.2001, Qupperneq 61

Morgunblaðið - 10.05.2001, Qupperneq 61
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2001 61 LÖGREGLUMENN sem vinna að fíkniefnamálum horfast daglega í augu við þær hörmungar sem fylgja hinum harða heimi vímuefn- anna. Þar eru lygar, þjófnaðir, lík- amsmeiðingar, innbrot og fangels- anir nánast daglegt brauð. Fíknin er harður húsbóndi. Það rennur okkur lögreglumönn- um sérstaklega til rifja hvað ungt fólk er fjölmennt í fíkniefnaheim- inum og hvað það er stuttan tíma að ánetjast neyslunni. Sumir eru vart af barnsaldri. En þegar við fáum tóm til að spjalla við þetta unga fólk, þá sjáum við að undir harðri skelinni er oftar en ekki ráðvillt manneskja sem þráir ekkert heitar en hætta í ruglinu. Til allrar hamingju býður þjóðfé- lagið vímuefnasjúku fólki tækifæri til að snúa við blaðinu. Það er okkur lögreglumönnum alltaf ánægja að geta bent ungum vímuefnaneytend- um á hvar slíka aðstoð er að fá. Sig- ur í baráttunni við fíkniefnin vinnst ekki með lögregluaðgerðum ein- göngu og hvað varðar unga neyt- endur þá hljóta aðrir að koma við sögu. Án þess að á nokkurn sé hallað, fer ekki milli mála að SÁÁ er fram- arlega í flokki þeirra aðila sem veita áfengis- og vímuefnameðferð. Þar fer saman löng reynsla, afköst og góður árangur. Yngstu áfengis- og vímuefna- neytendurnir eiga þess kost að fara í meðferð á sérstakri unglingadeild SÁÁ á Vogi. Að henni lokinni tekur við framhaldsmeðferð, ýmist á með- ferðarheimilum eða í göngudeildum samtakanna. Það er alltaf gleðiefni fyrir lög- reglumenn að hitta aftur þá sem hafa valið að þiggja hjálp til að geta snúið baki við vímuefnaheiminum, ekki síst þegar viðkomandi hafa snúið sér aftur að námi eða vinnu. Starfsemi SÁÁ er í mörgum til- fellum lykillinn að hinum gæfusömu umskiptum einstaklinganna. Við getum öll lagt hinu árangursríka starfi samtakanna lið um næstu helgi, en þá fer fram Álfasala SÁÁ. Því miður er það svo að framlag hins opinbera nægir ekki til að standa undir nema hluta af hinni mikilvægu starfsemi SÁÁ og því treysta samtökin á stuðning al- mennings. En SÁÁ hefur ekki aðeins lagt rækt við meðferð ungra vímuefna- neytenda, heldur hafa samtökin einnig sinnt forvörnum af krafti. Í starfi okkar lögreglumanna sjáum við hvað forvarnir hafa mikið gildi. Því betur sem ungt fólk er upplýst um hættur vímuefnanna, því auð- veldar er fyrir það að taka skyn- samar ákvarðanir. Því betur sem foreldrar geta leiðbeint börnum sínum, þess minni hætta er á að málin fari í ógöngur. Ungir kunn- ingjar í betri málum Hörður Jóhannesson SÁÁ Yngstu áfengis- og vímuefnaneytendurnir, segir Hörður Jóhann- esson, eiga þess kost að fara í meðferð á sér- stakri unglingadeild SÁÁ á Vogi. Höfundur er yfirlögregluþjónn í Reykjavík. þroskahefta til þess að honum líði vel. Minnstu breytingar geta valdið mikilli röskun því þroskaheftir eru oft afar viðkæmir fyrir minnstu breytingum. Það getur tekið langan tíma að vinna traust þeirra aftur og jafnvel getur orðið afturför hjá þeim þegar skortur er á starfsfólki með þekkingu á þeirra sérþörfum. Í dag höfum við verulegar áhyggjur vegna þess að hópur þroskaþjálfa hefur sagt upp störf- um vegna bágra launakjara, en í dag fær þroskaþjálfi eftir 20 ára starf tæpar 118.000 kr. á mánuði og kemst ekki hærra. Þetta ástand eykur áhyggjur okkar af framtíð- inni og hvað bíði barna okkar. Við sættum okkur ekki við að þeirra bíði vanlíðan og óöryggi vegna þess að kjör þeirra sem hafa þekkingu og hæfileika eru slík að enginn fæst til þessara starfa. Við treystum því að ráðamenn sýni metnað og bæti kjör þeirra sem hafa valið sér að starfa með fólki með fötlun og aflað sér menntunar og þekkingar á því hvernig best er hægt að tryggja vel- líðan og framfarir barna okkar. Á þann hátt sýna þeir fólki með fötlun virðingu. Höfundar eru mæður þroskaheftra unglinga. Njálsgötu 86, s. 552 0978 Sængur og koddar í úrvali M O N S O O N M A K E U P lifandi litir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.