Morgunblaðið - 10.05.2001, Side 85
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2001 85
BANDARÍSKI bílaframleiðandinn
Ford er um þessar mundir að
hleypa af stokkunum nýrri auglýs-
ingaherferð sem kynnir 2002 ár-
gerðina af Ford Explorer jepp-
anum. Fyrsta sjónvarpsauglýs-
ingin í þessari herferð verður
frumsýnd nú í apríl og þar má sjá
Explorerinn keyra um grýtt jarð-
hitasvæði, inn á milli lítilla hvera
sem gefa ekki aðeins frá sér vatn
og gufu. Á meðan bíllinn keyrir
milli hveranna, gefa þeir nefnilega
frá sér tóna, og smátt og smátt
kemur fram laglínan úr „Óði til
gleðinnar“ úr níundu sinfóníu
Beethovens.
Þessi auglýsing var tekin á
Reykjanesi í mars síðastliðnum
með aðstoð Saga Film sem sá um
alla framleiðslu auglýsingarinnar
hér á landi. „Við bjuggum til um
fimmtán „gervihveri“, sérsmíð-
aðar tunnur sem fylltar voru með
80 gráðu heitu vatni,“ segir Pétur
Sigurðsson verkefnisstjóri hjá
Saga Film, en hann stýrði þessu
verkefni fyrir hönd fyrirtækisins
ásamt Leifi Dagfinnssyni. „Síðan
var ískaldri kolsýru hleypt á tunn-
urnar með fjarstýrðum tækjabún-
aði og þannig „gusu“ hverirnir
þegar bíllinn keyrði framhjá.“
Alls komu um áttatíu manns að
gerð þessarar auglýsingar hér á
landi og eins og vænta má, var
brelludeildin stærsti hópurinn.
Pétur segir að tökur hafi staðið yf-
ir í fimm daga hér á landi. „Hvera-
senan var tekin upp í Rauðhólum,
en við fórum einnig upp að Geysi í
Haukadal og út á Reykjanes, þar
sem notuð var fjarstýrð útgáfa af
jeppanum til að sullast í kringum
leirhveri sem þar er að finna.“
Fjarstýrð-
ir hverir
spila
Beethoven
Ljósmynd/Leifur Dagfinnsson/Saga Film
Frá tökustað auglýsingarinnar í Rauðhólum á Reykjanesi. Í bakgrunni
má sjá „hverina“ sem gerðir voru fyrir auglýsinguna.
Saga Film hefur unnið sérstæða auglýsingu fyrir Ford
Meðferð í þremur þrepum:
Zen Cleanser - 2 fyrir 1 hreinsigel og „toner“
fyrir allar húðgerðir.
Detox Coctail - losar húðina við eiturefni og ver
hana fyrir skaðlegum efnum í umhverfinu.
Guardian Angel - nærandi rakakrem fyrir
eðlilega og þurra húð eða mattandi olíulaust
rakakrem fyrir blandaða og feita húð.
Veglegur kaupauki þegar
keypt er fyrir 3.000 kr.
*Gildir meðan birgðir endast.
Kynning 10. til 15. maí
Snyrtivörudeild
Kringlunni
www.urbandecay.com
FYRIR FALLEGA HÚÐ
Vesturgötu 2, sími 551 8900
Eyjólfur Kristjáns.
spilar í kvöld