Réttur - 01.12.1916, Síða 25
139 -
Aftur á móti er hér gert ráð fyrir þessum flóabátum, og
fari þeir jafnmargar ferðir að minsta kosti, hver um sitt
svæði, eins og hringferðir póstskipanna:
Faxaflóabátur. Reykjavík, Borgarnes, Búðir, Keflavík o. s.
frv.
Breiðafjarðarbátur. Stykkishólmur, Búðardalur, Skarðs-
strönd, Gilsfjörður, Barðaströnd, Flatey.
Vestfjarðabátur. Patreksfjörður —Súgandafjörður.
Djúpbátur. ísafjörður, Inndjúp, Bolungarvík, Aðalvík.
Eyjaffarðarbátur. Akureyri, Svalbarðseyri, Árskógsströnd,
Grenivík, Hrísey, Dalvík, Siglufjörður.
Austfjarðabátur. Djúpavogur— Borgarfjörður.
Vafalaust mundu Húnvetningar og Strandamenn, Skag-
firðingar og Norður-Pingeyingar fylla hér í eyðurnar síðar
meir. En minni nauðsyn ber þar til slíkra ferða, heldur en
við Breiðafjörð, á Vestfjörðum og Austfjörðum, þar sem
landferðir eru erfiðar og seinlegar á öllum tímum árs, en
sjóleiðin hinsvegar örugg og hættulítil heim að hverju bygðu
bóli. Að sama skapi munu bifreiðar innan skamms verða
notaðar á sumrin til að flytja farþega og póst, þar sem
akvegir eru góðir. Póststjórnin hefir nú þegar riðið á vaðið
og samið við Jónatan kaupmann Porsteinsson um að halda
uppi reglubundnum bifreiðarferðum sumarlangt milli Reykja-
víkur og Keflavíkur, Reykjavíkur og Pingvalla, Reykjavíkur
og Ægissíðu, Reykjavíkur og Eyrarbakka. Hefir Jónatan Por-
steinsson skuldbundið sig til að gera þetta fyrir ótrúlega
lítið fé (600 krónur) og er auðséð á því, að hann býst við,
að ferðirnar verði mikið notaðar og bifvagnarnir sjaldan auð-
ir. — Pingeyingar hafa nú þegar bifreið á Reykdælabraut
og er auðséð, þó að lítii sé reynslan enn, að fólksflutning-
ar verða þar mun meiri en búist var við fyrirfram. — Frá
Akureyri geta bifreiðar gengið, bæði út í Hörgárdal og fram
í Eyjafjörð. Brautirnar frá Sauðárkróki og Blönduósi lengjast
nú með ári hverju og mun biftækjum fært um þau héruð
bæði, að miklum mun, áður en langt um líður. —■ Frá
Borgarnesi liggur nú góð akbraut vestur í Hnappadalssýslu
og önnur upp Mýrasýslu, norðan Hvítár. Par er brú á ánni,