Réttur


Réttur - 01.02.1925, Side 34

Réttur - 01.02.1925, Side 34
Rekstursráð. Upphaf. í útlendum frjeltum, sem birst hafi í hlöðum hjer á landi, er á stöku stað gelið um rekslursráð. En hvergi mun þó rækilega hafa verið skýrt frá þessari merku hugmynd, sem þó hefir vakið mikla athygli og umræður víðsvegar um lönd. En til þess að bæta úr þessu, tnun jeg í ritgerð þe«sari gefa stutt yfirlit yfir sögu rekstursráðatina erlendis, tilgang Jaeirra og reynslu þá, seru fengist hefir, af þessu nýja skipulagi. Hefi jeg, við samning greinar þessarar, aðallega stuðst við bók, sem nýlega er gefin út af fræðslunefnd stúdentafjelagsins (Studenlersamfundets Oplysningsfo-ening) í Kaupmannahöfn. Eftir heimsstyrjöldina síðustu bar víða um lönd mikið á ótta manna yfir því, að alheimsbyliing myndi skella á. En til þess að sporna við henni, vildu stjettir þær, er fóru með völd, allmikið til vinna. Pess vegna var verkalýðnum gefið loforð um bætt kjör og betri aðstöðu. Eitt af því, er þá kom mjög til umræðu og alhugunar, sjerstaklega í iðnaðarlöndunum, var hugmyndin um rekstursráð. Pótt ekki sje unt að gefa afmarkaða skilgreiningu á hug- takinu rekstursráð, þykir þó rjettara til skýringar og skilnings- auka á því, er hjer fer á eftir, að gera tilraun til skilgrein- ingar orðsins. JVIætti þá hugsa sjer liana eitthvað á þá leið, að rekstursráð vœri nefnd manna, valin af launuðum verka- mönnum ákveðinnar slarfsgreinar með það fyrir augum, að verkamennirnir hefðu hönd i bagga með stjórn og starfsemi þeirrar atvinnugreinar.

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.