Réttur - 01.02.1925, Blaðsíða 75
Réttur
77
Allra augu mæna nú til Bretlands. Verkamenn í nálægum lönd-
um sýna samúð sína í verkinu. Franskir prentarar, þýskir
kolanemar, danskir hafnarverkamenn neita í atvinnuleysinu að
framkvæma nokkurt það starf, er enska verkalýðnum má til
fjóns verða.
Hálf önnur öld er nú liðin siðan stóriðnaðurinn spenti
greipar um atvinnulíf Breta. Vélarnar og aðrar dásamlegustu
nýsmiðar, sem mannsandinn hefir látið reisa, og mest gætu
auðgað mannkynið, ef rétt væri á lialdið, þær hafa leitt böl yfir
breska verkaliðinn og hrakið fólkið úr sveitunum í verk-
smiðjubæina. I rúrna öld hefir breski verkalýðurinn orðið að
heyja harða baráttu fyrir einföldustu réttindum sínum.. Upp-
runalega var verkamönnum bannað með lögum að mynda sam-
tök til að ba;ta kjör sin, og félagsskapurinn var ekki viðurkend-
ur fyrri en eftir harða og langa baráttu. Með verkföllum og
deilum var hann knúinn fram, því að atvinnurekendur létu ekki
undan fvrri en i fulla hnefana. Verklýðssamtökin eru dýru
verði keypt. Fjölmargir forgöngu- og áhugamenn þeirra hafa
rutt þeim braut ineð blóði sínu, og með þeirri kolamáladeilu sem
nú stendur, er verkalýðurinn að sækja aukin réttindi og lífsskil-
yrði i hendur atvinnurekenda og ráðandi stjórnmálaflokks í Bret-
landi. — í kröfum og tillögum verkalýðsins or bent á framtíð-
arskilyrði fyrir því að fólkinu geti vegnað vel i landinu. þar er
rætl um nauðsyn þess að umskapa iðnaðarlíf Breta frá rótum.
Að öðrum kosti muni það vera dæmt til hnignunar og hruns.
Skórinn er farinn að kreppa að fætinum víðar en í kolanánm-
rekstrinum. í öllum helstu iðnaðargreinum má sjá hin sömu
tmignunarmerki, t. d. járn- og stáliðnaði, hómullar- og ullariðn-
aði. Framleiðslan minkar og atvinnuleysið eykst. Áður en kola-
verkfallið hófst voru 1,25 miljón atvinnulausra verkamanna í
Bretlandi.
þegar atvinnulífið heima fyrir stendur í stað eða hnignar,
þá snúa bresku auðmennimir sér með peningana i aðrar áttir.
þá leggja þeir fé sitt i erlend fyrirtæki, sem gefa betri arð en
iðnaðurinn heima fyrir, og jafnvel stórbankarnir bresku ráða
bluthöfum sinum og innstæðueigendum að leggja fé sitt í er-
iend fyrirtæki, er gefi meira af sér. Rkki er nú meiri þjóðrækni