Réttur - 01.02.1925, Blaðsíða 67
Réttnr
69
þá er það sjálfsagt mest um vert að láta börnin segja sér frá
því, sem þau hafa numið, tala við þau um það, benda þeim
á andann og kjarnann, og hjálpa þeim til að fá heildarblæ á
alt, sem þeim et kent.
Eg hefi stundum heyrt kvártað undan því, að börnin lærðu
ýmislegt ljótt í sollinum i skólanum, og eg býst við því, þvi
miður, að þetta sé ekki með öllu tilhæfulaust En við það mun
ekki verða gott að ráða, ef foreldrarnir eiga ekki þann að-
gang að barnssálinni, að þeir uppræti jafnóðum þessi skaðlegu
áhrif. Einmitt í sollinum kemur það best í ljós, hvert mótstöðu-
afl börnin hafa fengið í foreldrahúsum, því bami er ekki svo
hætt, sem hiklaust getur opnað sig fyrir föður eða móður.
Vanti þann innileik í heimilislífið, er hætt við að okkar áhrif
reynist of veik og skammvinn, hversu vel sem við erum að
ve.rki.
þetla er alvarlegasta atriðið við alt skólahald hér i bæ. eins
og því miður svo víða annarstaðar. Feðurnir kvarta í sífellu yfir
því, að þeir hafi engan tíma til að sinna börnunum, og mæð-
urnar na ekki til þeirra, þær missa þau út i sollinn á götunni,
en eru sjálfar bundnar við búverk og brjóstmylkiga. Eg veit
ekki hvort þetta getur verið öðru vísi. því miður er alt mót á
þvi, að þessu lík sjeu lífskjörin að verða fyrir ærið mörgum,
sem verða að fleyta fram lífinu á kaupstaðarmölinni.
En hér er alvörumál á ferðum. þau verðmæti, sem bömin
fara á mis við af þvíliku uppeldi, verða ekki bætt með æfilangri
skólagöngu. Og sannarlega væri það þess vert, að hverjir ein-
ustu foreldrar tækju það til alvarlegrar íhugunar, hvort ekki
væri einhver vegur að leggja svolítið meiri sál inn í heimilis-
lífið. pó friðarstundirnar sjeu fáar, þó getur samt þýður hug-
blær leikið, jafnvel um stritið og störfin. Og barnssálin er ótrú-
lega viðkvæm fyrir öllum yl og hlýju. Sem betur fer, sjáum
við þess mörg dæmi, að mannlífið þarf ekki að vera eintómur
kuldi. Og þótt ærið oft vilji fjúka í skjólin, þá verðum við í
iengstu lög að verja bömin fyrir næðingunum.
Skólinn og kennararnir vilja hjálpa ykkur foreldrunum
til að gera hlýtt og bjart i kringum bömin í þessum bæ. Við
ættiim að geta verið ykkur talsverður styrkur — það eigið þið