Réttur - 01.02.1925, Blaðsíða 54
56
Rjettur
Macmanus, Bell, Murphy, Campbell, Arnot, Cant og Wintz•
ingliam. Kommunistaflokkurinn enski hefir vaxið óðfluga
upp á síðkastið, og einkum hafa áhrif hans á vinstri væng
verkalýðshreyfingarinnar aukist. íhaldið sá því, að tími var
til kominn að reyna að hefta dálítið vöxt hans, og greip því
til þessara ráðstafana. Fyrst ekki var hægt að fá neina sæmi-
lega átyllu, falsað skjal, mútur frá Rússum eða slíkt, var það
ráð tekið að brjóta svo herfilega í bága við ritfrelsið, sem
raun varð á. »Nauðsyn brýtur lög,« segir máltækið. En
hætt er við, að auðvaldinu skjátlist, ef það ætlar að útrýma
Kommúnismanum með ofsóknum. Rær hafa hingað til aðeins
styrkt og hreinsað allar byltingarstefnur.
Frá Rússlandi.
Rússneska verkamannalýðveldið hefir nú staðið í rúm 8 ár.
Fyrstu 4 árin átti það fult í fangi með að reka af höndum
sjer útlenda og innlenda óvini, sem með öllu móti reyndu
að steypa ráðstjórninni, og endurreisa hið forna auðvalds-
skipulag. Pað var ekki fyr en 1921, að rússneska alþýðan
var búin að friða land sitt, og gat tekið til óspiltra málanna
að endurreisa iðnaðinn og aðra atvinnuvegi, er koinist
höfðu í kaldakol fyrir óstjórn hervaldsins á stríðsárunum, og
ekki hafði verið unt að endurreisa, meðan á borgarstríðinu
stóð.
En síðan 1921 gengur vel með viðreisn landsins. Fram-
farirnar á öllum sviðum þjóðarbúskaparins aukast æ meir og
hraðara því lengur setn líður, enda rekur flesta þá, er verið
hafa i Rússlandi 1921 og koma þangað nú, í rogastans yfir
þeim breytingum til batnaðar, sem á eru orðnar. T. d. um
framfarirnar skulu hjer nefndar nokkrar tölur, einkum þó til
að sýna hverjar breytingar hafa orðið á síðasta ári. Fram-
leiðsla ríkisiðnaðarins var 1924 — 25 (1. okt. til 1. okt.) 2998
miljónir gullrúblur, envar 1923 — 24 aðeins 1854 miljónir, en
mun á næsta ári verða 4511 miljónir. Steinolíuframleiðsla
var 1923—24 362 miljónir pud. (64,5“/o af því sem það
var fyrir stríðið); 1924 — 25 423 miljónir, og er áætlað á