Réttur


Réttur - 01.02.1925, Síða 35

Réttur - 01.02.1925, Síða 35
Rjeítur 37 Af þessari skilgreining'u sjest, að verulegur munur er á rekstursráði og þjódnýtingu. Rekstursráðin eru ef til vill spor i áltina til þjóðnýtingar atvinnuveganna, en ekki hið sama. Hugmyndin urn rekstursráð á rót sína að rekja til hins mikla misrjeítis, er leiðir af núverandi skiftingu framleiðslu- og atvmnuarðsins. Eftir núverandi skipulagi tekur verkamað- urinn ákveðin samningsbundin laun, sem ekki eru miðuð við afrakstur vinnu hans. Hann hefir engin áhrif á rekstur og fyrirkomulag atvinnugreina þeirra, er hann stundar. En þetta hefir áhrif á framleiðslumagnið. Pegar verkamaðurinn kemst að raun um joað, að strit hans og starfslaun standa ekki í rjettu hlutfalli við ágóðann af vinnu hans, missir hann áhug- ann við að leggja sig í líma við starf sitt. En við það mink- ar framleiðslan. Krafan um rekstursráð er því aðallega runnin frá verka- mönnunum sjálfum. Peir krefjast þess, að fá að líta eftir, at- liuga og jafnvel breyta aðferðum og ágóða atvinnurekend- anna. En rekstursráðin eiga þó einnig formælendur utan verkalýðsstjettanna, jafnvel meðal sjálfra atvinnurekendanna, En fyrir þeim vakir þó annað. Með rekstursráðunuin hyggja þeir að koma á friði, minka óánægju verkamannanna, en gefa þeim í raun og veru svo lítinn íhlutunarrjett, sem mögulegt er, og kæfa með því kröfuna um þjóðnýtingu. En verka- mentiirnir skoða rekstursráðin sem áfanga á veginum til þjóð- nýtingar og krefjast þess, að ráðin hafi miklu meiri og víð- tækari íhlutunarrjett en atvinnurekendur vilja vera láta. En hvað sem mismunatidi skoðunum og hvötum líður, er það þó víst, að hugmyndin um rekstursráð verður ekki þög- uð í hel, hvorki hjer á landi nje annarsstaðar. Sögudrög. Eins o» margar merkar nýjungar á sviði stjórnmálatina, er hugtnyndm um rekstursráð runnin frá el-tu tnenningarlönd- um álfu vorrar. Pegar hugmynd þessi fyrir skömmu barst til Norðurlanda, var hún aðeins talin draumórar einir og fylgismönnutu ráðanna brugðið um fíflskuhjal. En slíkt er

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.