Réttur


Réttur - 01.02.1925, Síða 47

Réttur - 01.02.1925, Síða 47
Rjetiur 49 í-áðsfulltrúa verkamanna. Hefir það yfirleitt þótt bera góðan árangur. Á einu sviði hefir rekstursráðunum gengið treglega að starfa samkvæmt stefnu sinni. Það er þar, sem ráðin hafa viljað kynnast liókfærslu og fjárhagsástandi atvinnufyrirtækj- anna. Hafa atvinnurekendur þar verið óþjálir og illir viður- eignar, og litlar upplýsingar viljað í tje Iáta. Finst þeim víða bókhald og fjárhagur fyrirtækjanna vera verkamönnum óvið- komandi. En verkamenn halda því með rjettu fram, að slíkt skifti þá miklu máli, þar sem það hafi mjög áhrif á getu atvinnurekenda til að greiða viðunandi kaup. Og búast má við á þessu sviði haldi verkamenn fast við kröfu sína, og heimti sjer óskoraðan rjett til að kynnast bókhaldi og fjár- hagssástandi fyrirtækjanna. Ágóðaþóknun. Fegar rætt er um rekstursráð, er oft í sömu andránni talað um ágóðaþóknun. Menn tala oft um hlutdeild verkalýðsins í stjórn og ágóða atvinnufyrirtækjanna. Krafan um þjóðnýlingu og rekstursráð er runnin frá verka- lýðnum. Aftur á móti á ágóðaþóknunin sína aðal formæl- endur meðal þeirra manna, er á grundvelli einkaeigna at- vinnufyrirtækjanna vilja koma á friði milli verkamanna og at- vinnurekenda. Feir hinir sömu menn aðhyllast einnig fastan gerðadóm í kaupgjaldsmálum. Ágóðaþóknun má skilgreina þannig, að verkarnennirnir taki sem hlut af kaupi sinu þátt i ágöða fyrirtœkjanna. Hugmyndin um ágóðaþóknun er ekki ný. Um hundrað ára skeið hefir hún komið fram á ýmsan hátt, án þess þó að ná verulegri útbreiðslu. Fjóðhagsfræðingar og aðrir þeir, er um verldýðsmál hafa hugsað, hafa haft ýmislegt við ágóðaþóknunina að athuga. Hið helsta, er þeir telja að mæli á móti því skipulagi, er: 1. F*að bindur engan varanlegan enda á launakjör verka- lýðsins, því kreppur geta komið eftir sem áður, og 4

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.