Réttur


Réttur - 01.02.1925, Page 61

Réttur - 01.02.1925, Page 61
f Fred Bramley. í okt. síðastl. dó einn af þeim mönnum, sem mest hefir borið á í ensku verkalýðshreyfingunni og nú síðast í alþjóða- hreyfingu verkalýósins líka. Pað var Fred Bramley. Hann var að uppruna verkamaður, tók snemma að skifta sjer af verkalýðsmálum, og var síðan 1923 aðalritari enska verk- lýðsráðsins. Hann varð tæpra 50 ára, er hann andaðist, og þá einhver mest metni verkalýðsforingi á Englandi. Á síðasta ári bar þó mest á honum sökum þess, hve djarflega hann barðist fyrir sameiningu verklýðssambandanna. Hann var ritari ensku sendinefndarinnar til Rússlands og sá þá nauðsy'nina á því, að verkalýðurinn alsfaðar í heiminum hjálpaði rússnesku aljaýðunni til að halda við valdi sínu, ef á hana yrði ráðist. Á þingi enska verkalýðsins í Scarborough hjelt hann mjög merkilega og áhrifamilda ræðu f þessa átt. Lýsti hann yfir því, að rússneska byltingin væri fyrsta bylt- ing í sögunni, sem sett hefði sjer það takmark, að steypa ánauð fátæktariunar og framkvæmt það. Hún væri fyrsta til- raun verkalýðsins til að stjórna. Rússland væri jafnaðar- mannalýðveldi og að jaað væri eingöngu vegna þessarar þjóð- hagsbyltingar í Rússlandi, að það væri nú svo alment hatað og fordæmt af öllum yfirstjettum Evrópu. Tilraun Rússa og það, sem af henni leiddi, hefði fært okkur sönnunina fyrir því, að við mættutn hálshöggva konunga, hneppa stjórnend- ur í fangelsi og reka konungsættir frá völdum, eins og gert var í Austurríki og Þýskalandi; að við mættum hefja heims- stríð, sem leiddi til eyðileggingar og skelfingar. Alt þetta

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.