Réttur - 01.02.1928, Page 19
Plægingarveizlan hjá
Friðrik Tapbjerg
eftir
Jeppe Aakjær.
[Jeppe Aukjær er eitthvert kunnasta alþýðuskáld Danmerk-
ur. Hann er ættaður frá Jótlandi og hefur manna best ort um
hinar jótsku heiðar og íbúa þeirra. Velur hann sjer þó fyrst og
fremst yrkisefni úr lífi leiguliðanna, nýbýlamannanna og þjón-
ustufólksins. Kunnust skáldsagna hans er »Vredens Böm«, óg-
urieg lýsing' á kjörum vinnufólks til sveita f Danmörku. Aakjær
er jafnaðarmaður og talar máli alþýðunnar í sögum sínum.
Keraur það og greinilega í ljós í smásögu þeirri, er hjer birtist.
Lýsir hann þar skuggahliðinni á starfi því, er Danir stæra sig
svo af að hafa unnið á síðasta mannsaldri, ræktun heiðanna.
En sagan verður meira, ef vel er að gáð. Hún verður og furðu
nöpur háðmynd af stjettaþjóðfjelagi nútímans með allri hræsni
þess og rangsleitni].
Það varð naumast sagt að Friðrik Tapbjerg lifði í
makráðu hóglífi úti á Fleskjœr heiði, spölkorn frá höf-
uðstaðnum, því þegar hann var ekki í mógröfum að
hnoða mó, á þungu tréhnöilunum sínum, var hann stöð-
ugt í iausavinnu hjá bændunum í nágrenninu.
Þetta hafði orðið hlutskifti hans um fimtíu ára skeið.
Þess er þó ekki getið að ættingjar hans, eða vinir
hafi slegið upp veizlu með tilheyrandi skálaræðum og
silfurborðbúnaði í tilefni af afmælinu.