Réttur - 01.02.1928, Side 26
28 PLÆGINGARVEIZLAN HJÁ F. TAPBJERG [Rjettur
Friðrik kom út með brennivmsflöskuna og Lína kom
á eftir, í nýþveginni svuntu, með smákökur á diski.
Þegar þau höfðu boðið gestina velkomna buðu þau
hverjum um sig af brennivíninu og kökunum.
Gestirnir voru bændasynir og verkstjórar bænda —
bændanna sjálfra var ekki von fyr en verkinu var lokið.
Strax er gestirnir höfðu gert sér gott af veitingun-
um og búið var að vísa þeim á spilduna, sem vinna átti
að, tóku þeir verkfærin úr vögnunum og tygjuðu sig til
vinnunnar.
Að stundu liðinni tóku fjórir plógar til að rífa sund-
ur sendna heiðarlandið hans Friðriks Tapbjergs, en
krakkahópurinn kútveltist í flaginu á eftir til að tína
saman glerbrot og annað rusl, sem þau fundu í plóg-
farinu, sem angaði af moldarlykt.
Plægingamennirnir dröttuðu á eftir plógnum, með
beizlistaumana um hálsinn og tóbakspípuna í túlanum.
Þeir skiftust á ýmsum glensyrðum, er þeir mættust á
akrinum.
Vinnan var þeim ánægjulegur leikur, sem lokið var
á fjórum klukkustundum. Að því búnu beittu þeir hest-
unum fyrir vagnana aftur og þeim var gefið að eta, en
plægingamönnunum var boðið til kaffidrykkju.
Þegar hér var komið fóru bændurnir að koima, til
að eta út greiðann, sem þeir höfðu gert Friðrik hús-
manni Tapbjeg.
Fyrstur kom Movns Vistisen.
Hann varð að skakkskjóta sér inn um kofadyrnar til
þess að koma allri ístrunni inn fyrir.
Áður en hann fór inn leit hann þó eftir því, hvert
ökuhestunum hefði ekki verið ofboðið með vinnunni.
Hann klóraði þeim fyrir aftan eyrun og skifti tó-
bakstölunni sinni á milli þeirra.
Plægingamennirnir höfðu verið að masa yfir kaffi-
bollanum:, en urðu samstundis hljóðir, þegar húsbænd-
ur þeirra komu.