Réttur - 01.02.1928, Page 46
48
KOMMÚNISMINN OG BÆNDUR [Rjettur
manninum, brauðið frá börnunum hans og gleypti per-
sónu hans og heimili með húð og hári. Vjelarnar sjálf-
ar virtust vera hið fjandsamlega afl. öll barátta verka-
lýðsins beindist því gegn þeim. Hann þráði fortíðina,
þar sem hver vann að sínu. Því ekki að ráðast á óvætt
inn og drepa hann? Þannig myndaðist hin fræga vjel-
brjótahreyfing á Englandi, sem hafði það að mark-
miði, að eyðileggja vjelarnar, og endurreisa skipulag
fortíðarinnar. Yfirráðastjettin svaraði með því að
hegna þeim með lífláti, sem eyðilögðu vjelar.
Hin vísindalega jafnaðarstefna sýndi verkalýðnum
fram á að vjelarnar sjálfar eru ekki hið fjandsamlega
afl, heldur eigendur vjelanna. Vjelarnar eru blessun
fyrir mannkynið, það er auðvaldsskipulagið, sem er
bölvunin.
Stórframleiðsla nútímans er fjelagseðlis. ‘ Að sama
verkinu vinna þúsundir manna og það er ómögulegt að
m;eta verk hvers einstaks. Það er allsendis óhugsandi,
að hver verkamaður geti heimtað nákvæmlega afrakst-
ur þeirrar vinnu, sem hann hefir látið af mörkum t. d.
í málmiðnaði og vefnaðariðnaði Bandaríkjanna. Ef að
þessi stórframleiðslutæki væru sameign verkalýðsins,
væri laust við að hver ynni að sínu. Afraksturinn yrði
fjelagseðlis eins og framleiðslan. Það væri kommúnist-
iskt fyrirkomulag.
Það er því enginn annar kostur fyrir þá, serp óska
þess, að hver vinni að sínu, að brjóta vjelarnar og taka
upp gamla handiðnaðinn að nýju. Og eitt er víst, það
mundi kosta meira en vjelarnar, það mundi kosta mörg
mannslíf. Það mundi verða hin blóðugasta bylting, sem
sögur fara af.
Nú munu menn svara því til, að hjer á landi sje alt
öðru máli að gegna.
íslenska auðvaldið er að mestu bundið í togaraút-
gerðinni. Hugsum oss nú að togari, sem er 250 þús. kr.
virði, væri sameign allra þeirra, sem á honum vínna,