Réttur


Réttur - 01.02.1928, Síða 115

Réttur - 01.02.1928, Síða 115
Rjettur] GALDRA-LOFTUR 117 Dísu til að verjast »freistingum valdsins«. En hann talar í sömu andránni um, að þau lifi sem eigin-andi blási þeim í brjóst, »í illu og góðu«, ef þau »missi fótfestuna. Hvaða »ilt og gött« á skáldið hér við? Oft virðist svo, sem hugur Oaldra-Lofts stundi og stefni út fyrir »ilt og gott«, þangað sem hann þurfi eigi gefa slíkum mismun gaum. Kennir hér, að líkindum, áhrifa frá Nietzsche. Pá er eitt æðiskastið gagntekur hann, í viðtali við Ólaf svipstundu á undan dauða hans, spyr hann, hví hann ætti ekki »að vera vondur maður«. Og hann heldur þannig áfram: ^Þegar eg fæ valdið, skal eg nota það eins og svipu; Eg skal ginna og kúga manneskjurnar til að syndga, svo þær fái að reyna sömu kvalirnar sem eg hefi reynt«. Hann er hér skýrorðari og sterkorðari um framkvæmdir hins illa en hann var um framkvæmdir hins góða. Hann mælir þetta að vísu geggjaður. En hið illa hefir þau tök á honum, að óskiftur, óklofinn fær hann ekki fylst góðum ásetningi um meðferð valds og yfirnáttúrlegs máttar, ér hann hefir hlotið slíkt. En hversu er háttað hlutfalli »góðs og ills« í skaphöfn hans og sálu? Pví lýsir Loftur á þessa leið: »Við erum ekki nema skugginn af því verulega. Það verulega eru þau tvö völd, það illa og það góða, og sálirnar, sem þau hafa skapað í sameiningu. Pað illa stendar mönnunum nær, á sama hátt og eldur jarðarinnar er nær okkur en sólin. Það illa getur náð- fullkomnun sinni — en helgasta löngun mannsins hlýtur þó að vera löngunin eftir því góða«. Torskilin er hún, að sumu leyti, þessi annarlega lífs- speki. F*á er skáldið kveður »hið illa« standa okkur »mönnunum nær« en hið góða, á hann vísast við, að þeim sé gjarnast að breyta illa, að »hið illa« stýri löng- um framkvæmdum vorum og athöfnum. En sá er munur góðs og ills, skýrir skáldið oss, að »löngun« »eftir því góða« er »helgasta löngun« vor. Heilagt merkir það, sem ekki má traðka, óvirða, misbjóða, brjóta í gegn. Pá
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.