Réttur


Réttur - 01.01.1944, Page 20

Réttur - 01.01.1944, Page 20
24 R É T T U R 4. maí barst syohljóðandi boöskapur frá Kristjáni konungi 10.: „I tilefni af þeim lilkynningum, sem komið hafa frá Islandi um á- lyktanir Alþingis og ríkisstjórnarinnar viðvíkjandi breytingu á stjórnarforminu, óskum Vér að eftirfarandi boðskapur sé birtur ríkisstjórn íslands og þjóð. Alla stjórnartíð Vora hefur það stöðugt verið viðleitni Vor að efla velgengni hinnar íslenzku þjóðar, og k þessum árum, þegar styrjaldarviðburðirnir hafa svo djúptæk áhrif á líf þjóðanna, höf- um Vér reynt að fylgjast með þróuninni á íslandi og nákvæmlega íhugað afstöðu Vora lil íslenzku þjóðarinnar um leið og Vér jafn- framt höfum einnig haft fyrir augurn það, sem mætti verða til hagsmuna fyrir ríkið sem norrænt ríki. Þeim næmleika fyrir ósk- um þjóðarinnar, sem ævinlega hefur komið fram hjá Oss gagnvart Alþingi íslands og stjórn, mun að sjálfsögðu svo miklu fremur mega gera ráð fyrir í úrslitamálum fyrir örlög landsins í framtíð- inni. Vér hljótum samt sem áður á Vora hlið að hafa heimild til að ala þá von, að ákvaröanir um það framtíðarstjórnarform, sem sker í sundur að fullu bandið milli íslenzku jjjóðarinnar og kon- ungs hennar, verði ekki látnar komast í framkvæmd á meðan bæði ísland og Danmörk eru hernumin af útlendum veldum. Og Vér höf- um þá öruggu sannfæringu, að ef þetta færi fram, myndi það vera miður farsælt fyrir hið góða hræðralag milli þessara tveggja nor- rænu ríkja sem liggur Oss svo mjög á hjarta. Vér óskum þessvegna, að áður en úrslitaákvörðun verður tekin, verði ríkisstjórn íslands og þjóðinni tilkynnt, að Vér gelum ekki á meðan núverandi ástand varir viðurkennt þá breytingu á stjórnarforminu sem Alþingi Is- lands og ríkisstjórn hafa ákveðið án samningaviðræðna við Oss. Gefið í höll Vorri Sorgenfrí, 2. maí 1944. Christian R.“ 5. maí var fregnin um hoðskap þennan hirt og samtímis hirtu þingflokkarnir allir og ríkisstjórn svohljóðandi yfirlýsingu: „Það er réttur íslenzku þjóðarinnar sjálfrar og hennar einnar

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.