Réttur - 01.01.1944, Qupperneq 29
RÉTTUR
33
niunar. Eg veit líka, aS ekkert getur friðjiægt fyrir þjáningar okk-
ar hér, nerna sigur. En ef við sigrum, munum við að lokum, hver og
einn ,geta lifað sínu lífi. En allir þeir, sem afneitað hafa bræðralagi
mannana, munu finna að þeir eru einir, á kvöldin munu þeir koma
heim í herbergi þar sem þeir verða einnig einir, og fyrirlitning og
kæruleysi allra mun fylgja þeim, elta þá alstaðar eins og hundur. Og
þeir munu fara og finna sér konu til að búa með af því það er erfitt
að Iifa einn, og Jjau munu sofa saman og geta börn, sem einnig
verða óvelkomin, og að lokum grotna niður eins og sæðið sem féll
í grýtta jörð. Einnig nú á Jressari stundu, ef úti er eins dimmt og hér.
sitja og liggja víða í húsum vansælir menn. Því ástin þýðir val, og
sá á enga völ sem engu getur fórnað.
En frá þessum blindu mönnum í París og allt til kínversku sovét-
anna, í öllum löndum heims, eru á þessari stundu nokkrir menn, sem
hugsa lil okkar eins og við værum börn Jjeirra dáin.
Ég hef séð....
Ég verð að fara aftur í tímann.... Það er erfitt að tala í niða-
myrkri.
I tutlugu ár var faðir minn einn mesti baráttumaður verkalýðsins
í Gelsenkirchen. Þá dó móðir mín. Hann fór að drekka. A kvöldin
kom hann á fundina dauðadrukkinn, líkt og fólk sem hefur verið að
dauða komið úr hungri, fer á fætur um miðjar nætur til að ná sér í
brauð og fela undir koddanum. Hann kallaði fram í, hagaði sér eins
og fífl. . . . En stundum sat liann steinþegjandi aftast í salnum. Hinir
þekktu hann allir og þegar hann kom inn litu þeir til hans hryggir
og eyðilagðir, en Jieir létu hann aldrei út. „Víst eru það leiðindi,“
sagði félagi einn háðslega, vissi ekki að ég stóð bak við hann. . . .
Það var faðir minn, sem gaf mér fyrslu pólitísku skólunina, löngu
áður en Jretta var, auðvitað.... Þegar ég fór að halda ræður, reyndi
hann að hætta að drekka, en Jjað stóð ekki lengi. Framíköll lians
voru eins og högg neðan við beltisstað, en ég varð að hafa Jjað gegn-
um heilar ræður. Það var Jrá sem mér varð ljóst hve fast tengdur
ég var byltingunni.
Hann vann í námu. Dag nokkurn er hann var þar niðri með tvö-
hundruð vinnufélögum varð sprenging. Félagarnir úr björgunar-
3