Réttur


Réttur - 01.01.1944, Page 53

Réttur - 01.01.1944, Page 53
RÉTTUR 57 Ávextir, hnetur og rætur voru þá aðalfæðan. Myndun talmáls er meginarfur þessa tímabils. Allir þjóðflokkar, sem vér höfum spurnir af, síðan sögur hófust, voru fyrir löngu kornnir af þessu skeiði, sem sennilega hefur náð yfir þúsundir ára. Að vísu getum vér ekki sannað tilveru þess, jneð órækum vitnaleiðslum, en ef sú skoðun er viðurkennd, að þróunarferill mannsins eigi uppruna í dýraríkinu, þá er óhjákvæmilegt að gera ráð fyrir áðurnefndu umskiptaskeiði. MIÐSKEIÐ Það liefst með hagnýtingu fisks, auk krahba, skeldýra og annarra vatnadýra, til manneldis, og notkun eldsins. Þessi fæðutegund gerði manninn óháðan loftslagi og staðháttum. Hann gat því, jafnvel á miðskeiði villimennsku, farið meðfram fljótum og ströndum og dreift sér um allar jarðir. Sönnun þessara mannflutninga eru hin klunnalegu og ófægðu tinnuáhöld eldri stein- aldar, sém fundizt hafa í öllum heimsálfum og kölluð eru fornstein- ungar eða paleolítar. Þeir eru flestir frá þessu skeiði. — Nýtt um- hverfi, jmotlausar æfingar í hugvitssemi og eldkveikja með núningi varð til þess, að enn aðrar fæðutegundir fóru að tíðkast. Menn hökuðu mjölvisríka rótarhnúða í heitri ösku. Þegar fyrstu vopn- in, kylfur og spjót, voru tekin í notkun, náðist oft og einatt villidýrakjöt til Ijragðbætis. En veiðijrjóðir, eins og J)ær, sem vér lesum um í hókum, að lifað hafi eingöngu af veiðiskap, hafa aldrei verið uppi, JdvÍ að til jæss voru veiðarnar alllof óviss at- vinnugrein. Á Jjessu skeiði virðist mannát eiga upptök sín, vegna óvissu um aðdrætti matfanga, og af J)ví eimdi eftir lengi. Frum- byggjar Ástralíu og margir Jjjóðflokkar Suðurhafseyja eru enn í dag á miðskeiði villimennsku. LOKASKEIÐ Það hefst með uppfyndingu hoga og örva. Þá urðu veiðar örugg atvinnugrein og kjöt algeng fæða. Boginn, með streng og ör, er ])á ])egar tiltölulega marghrolið tæki. Tilkoma hans her vott um aukna reynslu og skerptar gáfur og fjölmargar aðrar uppfyndingar, álíka þýðingarmiklar. Vér komumst að raun um, að meðal Jseirra J>j óða, senn Jjekkja ör og boga, en ekkert til leir- keragerðar (með henni lætur Morgan hálfsiðun hefjast) rís upp

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.