Réttur - 01.01.1944, Qupperneq 59
R É T T U H
63
Fyrst er rakin æska Napóleons og uppeldi og sýnt, hvern þátt þau
eiga í mótun skapgerðar hans. Þá er lýst hinu pólilíska ástandi, er
gerði Napóleon valdatökuna kleiía — og svo herferðum hans og her-
snilld. Eru þar raktar þær staðreyndir úr hernaðartækni og styrjald-
arhögum samtímans, er runnu undir hersnilld Napóleons, án þess
þó að hlutur hans sem hernaðarsnillings verði nokkru minni fyrir
það. Þá eru þar dregnar skýrar „karakter“myndir af ýmsum helztu
herforingjum Napóleons sem og andstæðingum hans.
INNRÁS NAPÓLEONS í RÚSSLAND
heitir önnur bók, nýþýdd á ensku, sem Tarlé hefur skrifað um þetta
tímabil. Fjallar hún, eins og titillinn ber vitni um, um herferð Napó-
leons 1812 til Rússlands. Er þar fyrst skýrður pólitískur og hagrænn
bakgrunnur þessarar örlagaríku herferðar, og síðan lýst hinum ýmsu
orustum með mikilli nákvæmni. Eru þar dregnar skýrar myndir af
ýmsum helztu herforingjum Rússa á þessu tímabili eins og t. d.
Kútúsoff, Bagratían o. fl. Sérstaklega er þar vel lýst baráttu liinna
rússnesku skæruliða og þeirri hlutdeild er þeir áttu í því að aðeins
nokkrar þúsundir af 420 þúsunda innrásarher komust lífs af út fyrir
landamæri Rússlands. Nú stendur yfir önnur herferð á þessum sömu
slóðum. Hún er að vísu framkvæmd við allt önnur tæknileg og þjóð-
félagsleg skilyrði en lierför Napóleons — og framkvæmd af margfall
afturhaldssamari og grimmari öflum. Napóleon var að vísu í þann
mund orðinn all afturhaldssamur, eins og bezt sést af því, að hann
hirti ekki um að auðvelda sigurinn með því að leysa upp bænda-
ánauðina rússnesku — og jafnvel þegar veldi hans var á heljarbarmi
tregðaðist við að skírskota til fransks verkalýðs og gamalla jakobína
lil varnar föðurlandinu. Allt um þetta var þó veldi Napóleons jafn-
vel á sínu mesta afturhaldsskeiði hreint frjálslyndi sainanborið við
aflurhaldskúgun fasismans. 1 annan stað er heldur á engan liátt
hægt að jafna saman Zarveldinu og sovétríkjum hinnar rússnesku
alþýðu. Allt um þetta er freistandi að bera saman þessar tvær her-
ferðir og ekki sízt þátt rússneskrar alþýðu og skæruliða í þeim. En
það er verkefni sagnfræðinga.