Réttur - 01.01.1944, Side 82
86
R É T T U R
hvernig réttilega skyldi leysa úr spursmálinu um hið áætlaða fram-
leiðslumagn undir hinum nýju skilyrðum. Það er sýnilegt, að verk-
smiðjustjórnir í sumum iðjuverum, er óttuðust, að þær fengi ekki
ráðið við launagreiðslurnar, kröfðust þess að hækka hið áætlaða
framleiðslumagn, er veitti ákvæðisverkamanni rétt til grunnlauna.
Vér sjáum til dæmis, að málgagn þungiðjunnar, Sa indústríalísatsíú.
telur nauðsyn á að minna iðnaðarforstjóra á tilskipun ráðuneytis
þungiðjunnar, þar sem gert var ráð fyrir, að hinn nýi áætlaði
framleiðslumælikvarði, sem samþykktur hafði verið vorið 1935
skyldi ekki verða endurskoðaður fyrr en eftir lólf mánuði.1 Það
var auðsætt, að fljótráðin endurskoðun framleiðslumælikvarðans
mundi hafa dregið úr Ijrautryðjendum hinna nýju vinnuaðferða,
það hefði að minnsta kosti orðið þeim þyngri róður að fá sein-
látari samverkamenn sína til að slást í hópinn. Viðleitni hinna
fyrstu Stakanoffa var stundum tekið illa, ekki aðeins af hálfu verk-
smiðjustjóra, sem aí meðfæddri íhaldssemi eða af ótta við röskun
áætlunarinnar litu hinar nýju aðferðir illu auga, en einnig oft af
hálfu verkamanna, sem undu illa að breyta lil um góð og gild vinnu-
brögð eða voru haldnir fornum hleypidómum gegn „vinnuhrað-
anum“. Jafnvel Stakanoff varð fyrir aðkasti frá „vissum verka-
mönnum, sem hrópuðu að honum ókvæðisorðum fyrir þessar ný-
móðins grillur hans.“ Sérhver fljótráðin lækkun ákvæðislaunanna
mundi hafa ýtt undir slíka andstöðu og réttlætt kvartanir þeirra, sem
sögðu að aukatekjur Stakanoffanna væru fengnar á kostnað hinna
seinvirku verkamanna eða jafnvel miðlungsverkamanna, sem yrðu
nú að þola niðurskurð launa sinna. En hitt var ekki síður sann-
mæli, að þegar hinar nýju starfsaðferðir og vinnubrögð liöfðu náð
alþýðuhylli og vinnuhraði meirihluta verkamanna í verksmiðjun-
um hafði því aukizt að verulegu leyti, þá hefði ekki verið hægt að
halda óbreyltum hinum gamla framleiðslumælikvarða. Ef hann hefði
verið látinn óhreyfður mundi framleiðslukostnaður allur hafa
1 Sjá Indust. and Lab. Injormation, Vol. lvi, nr. 9, 320. Miðstjórn verka-
lýðsfélagana gaf út tilkynningu 17. okt. og minnti á, að sumir verksmiðjustjór-
ar hefðu reynt að endurskoða framleiðslumælikvarðann, en tók fram, að
framleiðslumælikvarðarnir skyldu vera óbreyttir um eins árs skeið.