Réttur - 01.01.1949, Blaðsíða 15
RÉTTUR
1P
furðu ósvífnir þegar þeir eru rökþrota. Hvemig haldið þið að
ástandið mundi vera ef stefnu Framsóknar hefði verið fylgt
og hin nýju framleiðslutæki hefðu ekki verið keypt til lands-
ins ? Hvemig haldið þið að gjaldeyrisástandið væri ef við hefð-
um ekki nema gömlu fiskibátana, gömlu togarana, gömlu
frystihúsin og gömlu verksmiðjurnar ? Nú er svo komið að
langmestur hluti útflutningsins er fmmleiddur af hinum nýju
tækjum, nýju togurunum og nýju bátunum. Aðeins örlítið brot
af útflutningsmagninu er framleitt með gömlu tækjunum. Tog-
ararnir skila gjaldeyrisandvirði sínu á einu ári. Enda hefur
gjaldeyrisandvirði útflutningsins hækkað úr 250 mlljónum
upp í 400 milljónir á ári vegna fmmkvæmda nýsköpunarár-
anna. Ef stefnu afturhaldsins hefði verið fylgt á ánmum 1944
til 1946 þá ætti nú að vera hverju baminu ljóst að við værum
fyrir löngu komnir inn í botnlausa kreppu, hið margumtalaða
hnm Eysteins Jónssonar fyrir löngu orðið að veruleika. En
þá hefði Framsókn og allt hið þríeina afturhald líka fengið
sitt tækifæri: — atvinnuleysi, sem skilyrði þess að fá fólk
til að sætta sig við þau kjör sem þeir herrar munu eiga við
þegar þeir tala um „réttlátar tekjur“ í stefnuyfiriýsingum
sínum.
Þá munu þeir líklega halda því fram, að þeir hafi verið að
brasa við að halda dýrtíðinni í skef jum með niðurgreiðslunum
og með bindingu vísitölunnar. Ekki geta þeir haldið því fram
að verkalýðurinn hafi lagt stein í götu þeirra. Jú þeir hafa
aukið niðurgreiðslumar úr rúmum 16 milljónum uppí 50
milljónir. Já, það er hægur vandi að ausa fé úr ríkissjóði, sem
aftur er tekið með sköttum af landsfólkinu til þess að greiða
vörumar niður. Til þess þarf engia kunnáttumenn. Enn minni
vandi er að lækka kaup manna með lögum og gera dýrtíðina
þar með enn verri og þungbærari fyrir almenning. Hitt er
kannski meiri vandi að kalla þetta ráðstafanir gegn dýrtíðinni.
Slík ósvífni er ekki öllum gefin. Árangurinn hefur svo eing og
kunnugt er, orðið sá, að raimveruleg verðlagsvísitala hefur
hækkað upp í talsvert á fimmta hundrað stig. Og ég hef sýnt