Réttur - 01.01.1949, Qupperneq 27
R É T T U R
27
Sósíalistaflokknum má lesa í blöðunum á hverjum degi. Það
er því mjög áríðandi að allur almenningur geri sér ljóst, að
með þátttöku Islands í árásarbandalaginu er ekki aðeins fram-
tíðartilveru þjóðarinnar stofnað í hættu, heldur á verkalýðs-
hreyfingin og íslenzk alþýða hendur sínar að verja nú í dag.
Það er afkoma hvers alþýðuheimilis nú á næstu árum, sem
um er barizt. Frumstæðustu mannréttindi íslenzks lýðræðis eru
í hættu.
Þeir segjast vilja að Island gangi í hernaðarbandalag ný-
lenduveldanna til þess að verjast rússnesku hemámi. Við vitúm
að tilgangurinn er allt annar; en hvað munu þeir uppskera?
Ef til styrjaldar kemur, sem hamingjan forði okkur frá, þá
munu þeir uppskera ósigur. Og ef þeir segja Sovétríkjunum
stríð á hendur, hverju geta þeir þá búizt við nema rússnesku
hernámi á sigruðu landi? Ef stríðsæsingamönnum Bandaríkj-
anna tekst að kasta heiminum út í styrjöld, þá eiga þeir ósigur
vísan. Það er hverjum manni ljóst, sem fylgist með því, sem
nú er að gerast í heiminum. Á móti sér munu þeir hafa ríki
sem telja 800 milljónir manna á samfelldu landsvæði, alla leið
frá Berlín austur að Kyrrahafi og suður á Austur-Indland,
búin hinum öflugustu vopnum nútímans og byggð þjóðum, sem
allt eiga að verja og allt munu leggja í sölurnar. Á móti sér
hafa þeir alþýðu Vestur-Evrópu og íbúa nýlendnanna og ann-
arra undirokaðra þjóða. Þeim tókst ekki að sigra kommúnist-
ana í Kína þó þeir hefðu fátt annarra vopna, en þau sem þeir
tóku frá Ameríkumönnum sjálfum. Því þessi stríð eru háð af
Bandaríkjunum, með bandarískum vopnum, enda þótt þeir
noti Grikki og Kínverja fyrir fallbyssufóður. Og svo þykjast
þeir herrar ætla að sigra allan heiminn. Svo þykjast þeir
ætla að sigra hið mikla herveldi alþýðunnar frá Berlín til
Kyrrahafs. Eins og sakir standa vita þeir sjálfir að það er
fjarstæða. En vonir þeirra verða minni því fleiri ár sem líða.
Þegar Kína verður orðið að þróuðu samvirku iðnaðarlandi verð-
ur það ósigrandi. Og á fáum árum margfaldast framleiðslan í
öðrum löndum alþýðunnar. Samtímis mim holskefla krepp-
unnar ríða yfir Ameríku og Vestur-Evrópu.