Réttur - 01.01.1949, Side 79
RÉTTUR
79
að ráða því ísland eigi aðeins að vera fyrir íslendinga
og enga aðra
Vegna þéssa tilgangs með yfirdrottnunarstefnu Banda-
ríkjanna á íslandi er sú stefna oss Íslendingum marg-
falt hættulegri en kúgun Dana nokkru sinni var, því
þessi stefua stofnar sjálfri tilveru þjóðarinnar í þessu
landi í hættu. Ameríska yfirdrottnunarstefnan gagn-
vart islendingum getur þýtt að eftir nokkra áratugi
sé ísland ekki lengur íslenzkt land, byggt íslendingum
einvörðungu, heldur amerískt land, þar sem Bandaríkja-
menn eru herraþjóð — eins og á Keflavíkurflugvell-
inum í dag, — en hinir „innfæddu” ýmist kúgaðir
þrælar amerísks hervalds og auðvalds eða keyptir þjón-
ar amerísku herranna. Ef vér íslendingar ætlum að
koma í veg fyrir slíka þróun, þá verðum vér að hefjast
handa og bindast samtökum í einni þjóðfylkingu Ís-
lendinga 1 ú þegar.
Hver íslendingur, sem ætlar að leggja hönd á plóg-
inn 1 hinni nýju sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar, verður
að gera sér ljósa aðstöðuna. í frelsisbaráttunni við Dani
var höfuðfjandi íslands danskur aðall, dönsk kaup-
mannaeinokun, danskt konungsvald og bandamenn
þessa erlenda kúgunarvarlds voru oft ýmsir íslenzkir
embættismenn og afturhaldslýður, en vér íslendingar
áttum oft bandamenn meðal dönsku þjóðarinnar, eink-
um fulltrúa danskra undirstétta og lýðfrelsishreyfingar
(svo sem sýndi sig 1901). Nú er höfuðfjandi íslands
amenskt hervald og amerískt auðvald og bandamenn
þessa erlenda kúgunarvalds er „íslenzk” auðmannastétt
og þjónar hennar, er nú ganga svo langt í þjónustu
sinni við hið útlenda vald að vinna nú þau verk, sem
danskir hirðstjórar og höfuðsmenn unnu áður.
Næstu verkefni þeirrar þjóðfylkingar, er skapa þarf í
frelsisbaráttu íslendinga við hið ágenga ameríska vald
hljóta þvi að verða þessi.: