Réttur - 01.07.1951, Blaðsíða 2
146
RÉTTUR
ferðilega skuldbindandi fyrir þjóð vora. Hann er einka-
samningur spilltustu höfðingja landsins við framandi her-
vald, gerður á þeirra persónulegu ábyrgð.
Tilgangur þessa samnings af hálfu hins ameríska auð-
valds er að leggja land vort undir sig til langframa og
geta notað það sem herstöð til árása á meginland Evrópu.
Tilgangur hinnar spilltu höfðingjaklíku lands vors með
því að fá herinn inn í landið er að geta notað hann gegn ís-
lenzku þjóðinni, — ef valdhafarnir álíta auði sínum eða
völdum hættu búna.
Afleiðing þessa samnings getur á friðartímum orðið glöt-
un frelsis vors, sjálfstæðis og þjóðernis, en á ófriðartímum
kallar samningur þessi yfir landið hörmungar hernaðar-
aðgerða, eyðileggingu flestra efnahagsverðmæta og ófyrir-
sjáanlegt manntjón og gæti leitt til eyðingar lands og þjóð-
ar, — allt á ábyrgð þeirra manna, er nú að þjóðinni forn-
spurðri hafa tekið örlagaríkustu ákvarðanir í sögu hennar.
Ríkisstjórn Bandaríkjanna gerir þennan samning við
ríkisstjórn, sem hún hefur gert sér handgengna og háða
með f járgjöfum, er skipta hundruðum milljóna króna. Slík-
ir ráðherrar eru þess ekki umkomnir að geta komið fram
sem sjálfstæðir aðiljar fyrir Islands hönd.
Þingmenn stjómarflokkanna og Alþýðuflokksins eru
kallaðir til Reykjavíkur, til þess að gjalda jáyrði við þeim
staðreyndum, sem gerðar eru. Samtímis eru bandarísk
herskip að ósk Bjarna Benediktssonar utanríkisráðherra
látin liggja í Reykjavíkurhöfn og amerískir hermenn hafðir
í landi, eftir fyrirmynd Hendriks Bjelke höfuðsmanns við
undirskrift Kópavogsskuldbindingarinnar. Þó 'mun það
hemám hugans, sem forheimskunarmálgögnin hafa fram-
ið, hafa nægt til þess að tryggja samþykki þingmanna
Marshall-flokkanna, án þess að benda þyrfti þeim á byssu-
stingina. En aðferðin er jafn táknræn fyrir ofbeldi ame-
ríska auðvaldsins við ísland og undirlægjuhátt keyptra
þýja þess.