Réttur - 01.07.1951, Síða 61
RÉTTUR
205
höndum af ánægju yfir því, að íbúar Vesturveldanna kvittuðu
fyrir sprengjurnar og íkveikjurnar á þann hátt að starfsbræður
þeirra, fulltrúarnir í Standard Oil og raunar líka hinum brezka
Shellhring- tóku við milljónagreiðslum fyrir hönd hinna þýzku
framleiðenda. Þannig voru Vesturveldin sjálf látin greiða það
benzín sem þýzku árásarflugvélarnar notuðu.
Nákvæmlega sama sagan gerðist hvað snerti annað bandarískt
dótturfélag I. G. Farben. Það hét American I. G. Chemical. Það var
látið skipta um eigendur að nafni til. Síðan var sett á stofn lepp-
félag í Basel í Sviss, sem yfirtók að nafninu til þýzku hlutina.
Þannig greiddi Standard Oil upphæðirnar, sem renna áttu í
sjóð I. G. Farben. Og þegar þetta komst upp eftir árásina á Pearl
Harbour neitaði Standard Oil hátíðlega að gefa nokkrar upplýs-
ingar um þessa starfsemi.
í bréfi, sem Frank A. Howard skrifaði sínum þýzka „kollega" í
I. G. Farben og fannst í skjölum hans eftir stríðið segir m. a. ein-
mitt um þetta samkomulag: „Ég vona, að þetta fyrirkomulag
muni fullkomlega tryggja bæði hagsmuni og réttindi beggja
aðila.“
Þau dæmi, sem hér hafa verið dregin fram eru aðeins örlítið
brot af fjölda slíkra, sem opinber hafa orðið, og sýna eðli einokun-
arauðvaldsins í heiminum og starfsemi þess í sambandi við styrj-
aldarrekstur. Út frá þessum staðreyndum fer það að verða vel
skiljanlegt hvers vegna hergagnaiðjuverum er hlíft í loftárásum,
sem mörg dæmi eru til úr síðustu heimsstyrjöld, en í þess stað
rignir eldsprengjum yfir íbúðarhverfi óbreyttra borgara. í her-
gagnaframleiðslunni á hið alþjóðlega einokunarfjármagn kapítal-
ismans hagsmuna að gæta.
Hátt upp hafnir yfir allar hörmungar styrjaldanna sitja forráða-
menn auðhringanna og einokunarsamsteypanna. Þeir græða fé á
tortímingu mannslífa, íkveikjum og eyðileggingum verðmæta
á svipaðan hátt og þjóðsagan segir að djöflarnir í Víti fitni á blóts-
yrðum og formælingum. Hjá þessum aðilum eru styrjaldir því
einfaldlega hrein og bein auðsöfnunartækni. Og hinar svokölluðu
„lýðræðisríkisstjórnir“ og flokkar þeirra halda hlífiskildi yfir og