Réttur - 01.07.1951, Page 81
RÉTTUR
225
inu við fyrri spurningunni. Þegar flotamálaráðuneytinu barst sú
njósn, að sést hefði til beitiskipanna fékk flotadeildin í Rosyth
skipun um „að láta hermennina ganga aftur á land, þó helzt ekki
án vígbúnaðar síns, og halda til flotans á hafi úti.“ Hliðstæðar
skipanir voru sendar til herskipanna í Clyde-ósi, sem einnig höfðu
herlið innanborðs.
Hversvegna veittu Norðmenn ekki öflugra viðnám, þar eð árás-
arliðið reyndist svo fáliðað. Fyrst og fremst sökum þess, að land-
varnarliði þeirra hafði ekki verið boðið út. Þrátt .fyrir aðvaranir
frá sendiherra þeirra í Berlín og frá herforingjaráði sínu, var her-
kvaðningin fyrst send út aðfaranótt 9. apríl, fáum stundum fyrir
landgönguna. Það var um seinan. Við hinar snörpu atlögur árásar-
liðsins fór herútboðið í handaskolum.
Auk þess beindist athygli norsku stjórnarinnar, eins og Churchill
hefur orð á, „fyrst og fremst að athöfnum Breta“. Það er hörmu-
leg kaldhæðni örlaganna, að lögn tundurduflanna skyldi draga að
sér, en frá öðru, athygli Norðmanna þennan örlagaþrungna sól-
arhring, áður en Þjóðverjar gengu á land. Landráð lögðu líka sitt
af mörkum á ýmsum mikilvægum stöðum til þess að torvelda
landvarnirnar.
Hvað snertir getu Norðmanna til að rétta hlut sinn eftir fyrsta
áfallið og búast til mótspyrnu síðar, þá háði þeim skortur þeirra
á stríðsreynslu, friðsemd þeirra og úrelt herskipan. Þeir voru á
engan hátt færir þess að bjóða leifturstríði samtíðarinnar byrgin,
jafnvel ekki í eins litlum mæli og þeir urðu fyrir barðinu á.
Þróttleysi mótspyrnunnar orkaði ekki lengur tvímælis, er árás-
arherirnir þeystu gegn um djúpa dali og hernámu gervallt landið.
Ef mótspyrnan hefði reynzt öflugri, hefði leysingin, sem torveld-
aði alla þungaflutninga verið talsverð torfæra á sóknarleið Þjóð-
verja.
Furðulegust þessara skyndiárása var árásin á Narvík, þar eð
sú norðlæga höfn liggur nær tvö þúsund kílómetra frá þýzku
flotahöfnunum. Tveir norskir strandvarnabátar gengu djarflega
fram gegn þýzku tundurspillunum, sem árásina gerðu, en varð
fljótlega sökkt. Strandvirkin gerðu enga teljandi tilraun til mót-
15