Réttur - 01.07.1951, Blaðsíða 90
234
RÉTTUR
um, ef Islendingum væri leyft að framleiða gjaldeyri og
gjaldeyrisvörur með því að hagnýta framleiðslutæki sín
og vinnuafl, væri ekkert atvinnuleysi á Islandi.
8. þing Sósíalistaflokksins
var háð í Reykjavík dagana 9.—11. nóvember. Á dag-
skrá þingsins voru eftirfarandi mál: 1. Skýrsla miðstjóijn-
arinnar og höfuðverkefni flokksins: Barátta þjóðarinnar
gegn hernáminu og árásum á lífskjör og sjálfstæði hennar.
2. Eining verkalýðshreyfingarinnar í stéttabaráttunni. 3.
Þjóðviljinn. 4. Flokksstarfið. Um öll þessi mál og fjölmörg
önnur voru gerðar hinar merkustu samþyktir. Þingið
samþykkti ávarp til þjóðarinnar og fer það hér á eftir:
íslendingar;
verkamenn, sjómenn, bændur, mennta-
menn;
þið allir, sem eigið líf ykkar og framtíð
undir starfi ykkar sjálfra og almenn-
ingsheill;
þið allir, sem viljið halda áfram að vera
lslendingar óg byggja þetta land einir og
frjálsir:
til ykkar snýr Sósíalistaflokkurinn sér í
þessu ávarpi.
UM FIMM ára skeið hefur lífskjörum ykkar verið stefnt til
hrörnunar :i kauplækkana, eignarýrnunar, vaxandi dýrtíð-
ar og aukins atvinnuleysis. Ótti og öryggisleysi varpa að
nýju skuggum sínum yfir heimili ykkar- Æ fleiri fjöl-
skyldur búa við hina sárustu fátækt, jafnvel daglegan
skort. Húsnæðiseklan hvílir eins og mara á alþýðufólki
bæjanna. Af tekjumissi verkalýðsins leiðir síþverrandi
kaupgetu, sem svo aftur bitnar á millistéttunum í mynd
víðtækra framleiðslustöðvana og stefnir efnahag þeirra til
hruns. En öll er þessi kjaraskerðing verkalýðs- og milli-