Réttur - 01.07.1951, Side 34
178
RÉTTUR
Enn einu sinni hefur verkalýðurinn verið minntur á það á
áþreifanlegan hátt, að hin stéttarlega hagsmunabarátta er ekki
einhlít. Skömmu eftir unninn sigur verkalýðsins í kaupgjaldsátök-
unum lét ríkisstjórnin framleiðsluráð landbúnaðarins hækka stór-
lega verð á landbúnaðarafurðum, þvert ofan í ótvíræð gild-
andi lagaákvæði um þetta efni. Þannig hikaði ríkisstjórnin ekki
við að brjóta lög til að koma fram hefndum á launþegum, strax
eftir að þeim hafði tekizt að rétta hlut sinn að nokkru eftir lang-
varandi og margendurtekna skerðingu á lífskjörum þeirra.
Þessi hefndarráðstöfun ríkisvaldsins, ásamt áframhaldi dýrtíðar-
skrúfunnar á öllum sviðum er alvarleg áminning til allrar alþýðu
um að herða nú einnig baráttu sína á vettvangi stjórnmála og lög-
gjafarstarfs. Við hlið hinna öflugu verkalýðssamtaka, og um leið
og einingin innan þeirra er treyst og efld á allan hátt, þarf alþýðan
einnig að skapa sína pólitísku einingu. Sundrung hennar í stjórn-
mólabaráttunni er undirrót síendurtekinna árása ríkisvaldsins á
lífskjörin. Það sem verkalýðsfélögin sækja í greipar auðvalds og
atvinnurekenda, er aftur hirt úr vösum alþýðunnar eftir leið-
um tollahækkana, verðhækkana og annarra fjandsamlegra ráð-
stafana þess ríkisvalds, sem þjónar auðmannastéttinni. Sóknina
á hendur þessu ríkisvaldi afturhalds og auðvalds verður alþýðan
nú að hefja, með því að efla sinn eigin flokk, Sósíalistaflokkinn,
meira en nokkru sinni áður. Það mikilvæga verkefni býður nú
úrlausnar verkalýðs, millistétta og annarra framsækinna afla í
þjóðfélagi okkar, sem vilja hverfa af braut marsjallstefnu og
áframhaldandi kjaraskerðinga, en hefja í þess stað markvissa
sókn fyrir því að tryggja þjóðinni blómlegt atvinnulíf, batnandi
lífskjör og almenna hagsæld.
Guðmundur Vigfússon.