Réttur - 01.07.1951, Blaðsíða 19
163
RÉTTUR
hverskonar kaup, — nema nýir samningar yrðu gerðir sem
ákvæðu annað.
Með þessari lagasetningu nam ríkisstjórnin úr gildi samnings-
bundin ákvæði verkalýðsfélaganna um greiðslu dýrtíðaruppbóta.
Vísitalan var fest.
Taldi ríkisstjórnin sig með þessu hafa tryggt þá kröfu Banda-
ríkjanna að engar kauphækkanir næðu fram að ganga. En það
var, samkvæmt upplýsingum Hannibals Valdimarssonar á Alþingi,
skilyrði af hálfu Bandaríkjastjórnar fyrir því 100 millj. kr. auka-
framlagi frá Marsjallstofnuninni, sem íslenzku ríkisstjórninni
var veitt í sambandi við „viðreisn" vélbátaflotans og hinn lög-
bundna svartamarkað bátagjaldeyrisins.
Ríkisstjórnin hafði ærna ástæðu til að ætla að árás hennar á
launakjörin og gildandi samninga bæri tilætlaðan árangur. Henni
hafði tekizt að rígbinda allt atvinnulíf íslands við efnahagskerfi
Bandaríkjanna og annara landa auðvalds og kreppubúskapar.
Hún hafði, með því að taka við Marsjallmútunum, afhent Banda-
ríkjunum algert drottnunarvald yfir fjármála- og atvinnulífi
landsmanna. Hún hafði undirgengizt að lækka gengið eins og
Bandaríkin krefjast hverju sinni. Hún hafði hlýtt kröfunni um
stórkostlega minnkaðar verklegar framkvæmdir og afhent Banda-
ríkjunum úrskurðarvald um fjárfestinguna. í einu orði sagt: Hún
hafði fórnað efnahagslegu sjálfstæði landsmanna á altari Banda-
ríkjanna. Öll alþýða hefur af þessum orsökum orðið fyrir þungum
búsifjum. Iiundruð alþýðuheimila um allt land eru ofurseld at-
vinnuleysinu mestan hluta vetrar. Raunverulega hefur kaupið
lækkað stórkostlega, ekki aðeins vegna atvinnuleysisins heldur og
af völdum hinnar gengdarlausu dýrtíðar, sem ríkisstjórnin skipu-
leggur af ráðnum hug. Frá því að nýsköpunarstjórnin lét af völd-
um 1946 hafði kaupmáttur launanna minnkað í sama hlutfalli og
að tímakaup Dagsbrúnar í almennri vinnu hefði verið lækkað úr
kr. 9,24 í kr. 6,61 miðað við gömlu vísitöluna og verðgildi krónunn-
ar áður en gengislækkunin var framkvæmd.
Auk þessara ráðstafana allra, sem áttu að tryggja snurðulausa
framkvæmd marsjallstefnu ríkisstjórnarinnar, og þar með hið