Réttur


Réttur - 01.07.1951, Page 4

Réttur - 01.07.1951, Page 4
148 RÉTTUR sig land vort í áföngum. Þeir hafa notið til þess aðstoðar beldi unnið að því á undanförnum áratug að leggja undir spilltustu valdhafa landsins, svo sem Hákon gamli gerði forðum daga, er hann vélaði af oss frelsi vort. En hvemig sem réttindum voram er rænt og valdi þjóðar- arinnar yfir landinu hnekkt, þá mun þjóð vor aldrei viður- kenna það réttarrán, aldrei lúta því framandi valdi, sem nú er að sölsa ísland undir sig. ISLENDINGAR! Örlagaríkustu atburðir í sögu þjóðar vorrar kalla oss til varðstöðu um málstað lands vors. Hernám það, sem ameríska auðvaldið hefur nú fram- ið, á að þess hyggju áð verða Iangvarandi og leiða til full- kominnar undirokunar vor íslendinga undir Bandaríkin. Mætið þessu hernámi með þeirri mótspymu einni, sem vér fámennir og vopnlausir, friðsamir og frelsisunnandi, getum veitt. Látið ekki æðrast, þótt ofbeldi sé beitt og Iátið ekki heldur ögra yður til verka, sem innrásarherinn myndi nota sem átyllu til frekari árása. Berjizt um hvert atriði réttar vors til yfirráða í landi voru, þegar innrásarherinn hyggst að ræna þeim rétti. Standið saman um að íslendingar haldi óskertu dóms- valdi í landi sínu! Hindrið að Bandaríkjamenn fái sjálfir að dæma í eigin sök, geri þeir sig seka um rán, nauðganir og manndráp eins og þeir gerðu hér síðast. Standið saman um að hindra að amerískt auðvald eða umboðsmenn þess leggi skatta á Islendinga, til þess að greiða herkostnað af innrás og hervirkjum Bandaríkja- manna í landi voru. Standið órofa vörð um tungu vora, þjóðemi og menningu gegn þeirri skrílmenningu ameríska mammonsríkisins, sem nú gerir innrás í land vort. Standið vörð gegn því hernámi hugans og hjartans, gegn

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.