Réttur


Réttur - 01.07.1951, Blaðsíða 12

Réttur - 01.07.1951, Blaðsíða 12
156 RETTUR Bjarni Benediktsson og félagar hans í ríkisstjórn íslands hafa kosið að taka á sig persónulega ábyrgð fyrir öllum þessum skelf- ingum. íslenzka þjóðin getur ekki hreinsað sig af þessum verkum, og ekki heldur skottið sér undan þeirri ábyrgð að hafa kallað hættu tortímingarinnar yfir sjálfa sig, nema með því að draga þessa menn til ábyrgðar. En Bandaríkjamenn fara heldur ekki dult með það, að heims- stríð það, sem þeir heyja nú og sem enn er „kalt“ á vesturhveli jarðar, og sem þeir vilja ólmir breyta í „heitt“, er ekki aðeins stríð gegn Sovétríkjunum, heldur eru óvinirnir dreifðir um allan hnöttinn. Það er heimsstríð gegn þeirri stefnu, sem þeir kalla kommúnisma. „Kommúnismi" — það er öll barátta mannanna, hvar sem er í veröldinni, fyrir þjóðfrelsi, bættum kjörum, sósíal- isma, lýðréttindum og friði. Það er t. d. „kommúnismi" að berjast fyrir því að notkun kjarnorkuvopna sé bönnuð Stefna amerískra stjórnarvalda er með öðrum orðum nákvæmlega hin sama og stefna þýzku nazistanna, — þó form áróðursins sé nokkuð breytt. Það er fasisminn afturgenginn og er nú skelfilegri ógnun við mannkynið en nokkru sinni fyrr. Það hefur engin fasistísk valdataka farið fram í Bandaríkjunum að þýzkum eða ítölskum hætti, en samt ríkir þar nú skefjalaus fasismi. Þar er lífshættulegt að láta í ljós andúð sína gegn stríði og notkun kjarnorkuvopna. Beztu vísindamenn, rithöfundar og listamenn Bandaríkjanna eru reknir frá störfum og verk þeirra eyðilögð vegna þess eins að þeir hafa tekið þátt í baráttu fyrir friði. Mönnum er varpað í fangelsi fyrir það eitt að neita að afhenda hinni fasistísku lög- reglu nöfn vina sinna og skoðanabræðra í baráttunni fyrir frum- stæðustu réttindum manna — svo hægt sé að ofsækja þá. Það er her þessa fasistaríkis, sem nú sækir ísland heim samkvæmt beiðni íslenzku ríkisstjórnarinnar. Það er fasistískt hernám, i eðli sínu sambærilegt við hernám nazista í Danmörku og Noregi. Mundi danska og norska þjóðin nokkurntíma hafa fyrirgefið okk- ur íslendingum, ef við hefðum gert okkur seka um það níðingsverk að fagna hernámi nazista í löndum þeirra? Og nú spyr ég: Munu ríkisstjórnir þessara landa fremja slíkt níðingsverk á okk- N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.