Réttur


Réttur - 01.07.1951, Side 17

Réttur - 01.07.1951, Side 17
RÉTTUR 161 Ályktun 22. þings Alþýðusambandsins. Verkfallið í maí átti sér alllangan og merkilegan aðdraganda, sem ekki er ófróðlegt að rifja upp í stórum dráttum. Hin víðtæku samtök verkalýðsfélaganna, sem að verkfallinu stóðu, voru byggð upp af miklum hyggindum og framsýni. Átti Verkamannafélagið Dagsbrún, hin trausta og reynda forustusveit íslenzkra verka- manna, höfuðþáttinn í því að svo giftusamlega var um alla hnúta búið í undirbúningi og framkvæmdum, 'að sigur verkalýðsins var tryggður fyrirfram, — nema því aðeins að um því herfilegri svik yrði að ræða innan frá, af hálfu erindreka atvinnurekenda í verkalýðshreyfingunni sjálfri, en til þess skorti þá hvorki vilja né tilburði, þótt unnt reyndist að hindra óhappaverkin, eins og síðar mun vikið að. Á Alþýðusambandsþinginu s.l haust var samþykkt einróma ályktun í kaupgjalds- og dýrtíðarmálum þar sem svo segir m. a.: „Samkvæmt ákvæðum gengislaganna er kaupgjald bundið frá 1. júlí s.l. til næstu áramóta, og hefur dýrtíðin aldrei vaxið örar en á þessu tímabili. Þannig hefur ríkisstjórnin brugðizt þeirri siðferðilegu skyldu, er á hana féll með kaup- bindingunni, að stöðva þá jafnframt verðhækkanir á sama tíma. Nú er allt útlit fyrir, að kaup fáist jafnvel ekki leið- rétt til samræmis við vísitölu um næstu áramót og verður það þá óbreytt næstu sex mánuði. Því telur þingið að verkalýðshreyfingin verði nú að spyrna við fótum, stöðva kjararýrnun þá, er af þessu hefur leitt, og hefja sókn fyrir því, sem tapast hefur, og fyrir batnandi lífskjörum. Felur þingið hinni væntanlegu sam- bandsstjóm að setja öllu ofar að sameina verkalýðsfélögin til samstilltra átaka í þessu efni. Þingið leggur ríka áherzlu á, að væntanleg stjóm A. S. í. hafi forustu um, að félögin leggi SAMEIGINLEGA til þeirr- ar baráttu sem framundan er.“ I þessari ályktun sinni tók 22. þingið á vandamálum kaup- gjalds- og dýrtíðar af raunsæi og framsýni, enda áttu sameiningar- 11

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.