Réttur


Réttur - 01.07.1951, Page 55

Réttur - 01.07.1951, Page 55
RETTUR 199 Sovétríkjanna og Þýzkalands haustið 1939, sem olli því að málin tóku aðra stefnu, en „lýðræðisstjórnirnar“ höfðu fyrirhugað. íslenzkar þjóðsögur geyma mörg merkileg lífssannindi, þótt ekki megi taka þær bókstaflega. Þær segja m. a. frá galdra- mönnum, sem vöktu upp drauga til þess að fyrirkoma þeim mönnum, er þeim var illa við. En fyrir kom það að sá sem draugurinn' var magnaður gegn var fær um að taka á móti honum og senda hann til baka. í slíkum tilfellum varð draugsi jafnan óþjáll húsbónda sínum. Slík saga var að gerast í stjórn- málum Evrópu allan þennan tíma. Öll hin ráðandi öfl hinna svokölluðu lýðræðisríkja hjálpuðust að við að vekja upp og magna hinn nasistíska draug til að eyðileggja Sovétríkin í styrjöld, og fyrirkoma með því sósíalismanum í heiminum. E. t. v. hefði það tekizt ef leiðtogar Sovétríkjanna hefðu verið flón eða viðvan- ingar á stjórnmálasviðinu. En það voru þeir ekki. Hvað skyldi hafa skort á stuðning „lýðræðisríkjanna“ við Þýzkaland, ef það hefði farið að vilja þeirra? Ætli það hefði staðið á framleiðslu vopna og annarra nauðsynja í hinu heilaga stríði gegn kommún- ismanum? Griðasamningurinn var fjarri því að vera vináttu- samningur. Hann var nauðvörn hinna sósíalistisku ríkja til að koma draugnum af sér. En hann var jafnframt eitt hið mesta snillibragð, sem sagan getur um á sviði heimsstjórnmála, og setti í strand allar fyrirætlanir auðhringa einokunarsamsteypna, og auðvaldsríkisstjórna um eyðileggingu sósíalismans og neyddi þessa þokkalegu samsærisöfl til þess að kljást sjálf við sinn eigin uppvakta draug. Og hann reyndist óþjáll, sem og íslenzka þjóðsagan hermir. Allur almenningur lifir í þeirri trú að um leið og styrjöld er hafin sé jafnskjótt skorið á öll tengsl efnahagslegs og viðskipta- legs eðlis milli þeirra þjóða, sem eigast við. En þetta er hinn mesti misskilningur. Á yfirborðinu lítur þetta að vísu svo út, en ekkert er fjær handhöfum hins alþjóðlega einokunarfjármagns, en að láta styrjaldir eyðileggja fyrir sér viðskiptamöguleika. Þvert á móti eru styrjaldir þeirra bjargræðistímar. Nokkur dæmi úr síð-

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.