Réttur


Réttur - 01.07.1951, Side 58

Réttur - 01.07.1951, Side 58
202 R É T T U R langar sjóleiðir, þar sem þýzki kafbbátaflotinn gat auðveldlega valdið stórtjóni. Út frá þessu sjónarmiði og fleiri slíkum sömdu þýzku hernaðarsinnarnir við engilsaxnesku olíuhringana, þegar stjórnendur þeirra sáu ekkert annað en gróðamöguleika. Árið 1937 tókust því samningar um að í Ameríku skyldi stofn- aður nýr hringur, er fékk nafnið „American Hydrocarbon Syntetic Corporation“. Hann fékk í hendur einkaréttindi til að nota upp- finningu þessa utan Þýzkalands, og greiddi stórfé fyrir. Auðvitað var uppfinningin aldrei notuð enda tilgangurinn sá einn. Þar með þóttust vesturherrarnir hafa tryggt sína einokun. En sagan er ekki nema hálfsögð með þessu. Því einu ári síðar eða 13. okt. 1938, gerðu Standard Oil og I. G. Farben með sér samning, sem án efa varð grundvöllur hinna örlagaríkustu áhrifa á gang styrjaldarinnar. I. G. Farben var þá orðinn aðalaðili í hernaðar- uppbyggingu nazistastjórnarinnar og engir slíkir samningar gerðir án vitundar hennar og þátttöku. Aðalatriði þessa nýja samnings voru þau, að I.G.F. skyldi fá nýjar stórar upphæðir fyrir fram- leiðsluleyndarmál sín auk þess sem greitt var áður. í staðinn hét I.G.F. að láta af hendi þær uppgötvanir sem það kynni að gera um óákveðinn tíma, í þessum efnum, gegn því að Standard Oil greiddi fyrirfram stórar fúlgur af hinum árlegu afgjöldum, og greiddi þær í olíu og benzíni. Þetta var á þeim tíma þegar naz- istastjórnin var í mestri önn að vígbúast undir styrjöldina, ári áður en hún hófst. Einu dæmi skal þó bætt við enn. Þegar styrjöldinni var lokið, voru ýmis skilríki I. G. Farben rannsökuð af sameiginlegri rannsóknarnefnd Bandamanna. Skyldi hinum bandarísku herrum í þeirri nefnd ekki hafa brugðið í brún, þegar upp í hendur þeirra barst skjal um það hvernig Hitler fékk a. m. k. verulegan hluta af olíubyrgðum sínum fyrir styrjöldina. Þar segir orðrétt: „Þýzka ríkisstjórnin gerði þá fyrirspurn til .I.G., hvort hann gæti ekki vegna vináttu sinnar og sambanda við Standard .Oil gert inn- kaup á flugvélabenzíni og öðrum olíuvörum í eigin nafni fyrir 20 millj. dollara , en þó fyrir þýzku ríkisstjórnina. Okkur tókst að

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.