Réttur - 01.07.1951, Síða 62
206
RÉTTUR
styðja slík samsæri gegn mannkyninu ýmist vegna þess að þau
trúa ekki á sína eigin félagslegu uppbyggingu, eða vegna þess
að stjórnirnar eiga líf sitt undir fjármálavaldi auðhringanna.
En jafnframt sjáum við hér rotnun hins kapítalistiska þjóð-
félags og hagkerfis í allri sinni nekt, því einmitt þessar staðreyndir
eru gleggsta dæmið um hrörnun þess á lokaskeiði sínu.
En auðvitað þarf að koma í veg fyrir að almenningur auðvalds-
landanna fái vitneskju um innsta kjarna'þessara mála. Enn í dag
eru þessi sömu öfl að verki og færast í aukana eftir því sem þróun-
inni miðar áfram, og eyða jafnframt stórfé til að kosta blekkingar-
herferð á hendur almennings. Til að grímuklæða þessa djöfullegu
starfsemi hefur verið búin til lygasagan um væntanlega árás
sósíalismans. Það er sú andlitsblæja, sem auðvaldsherrarnir, rík-
isstjórnir þeirra, stjórnmálaflokkar þeirra, dagblöð þeira, útvarps-
stöðvar þeirra og áróðurskerfi allt notar til að hylja hið sanna
innræti sitt og eðli.
Og því miður hefur sú blekkingarherferð borið of góðan árang-
ur. En þó er nú svo komið að með hverju ári sem líður gengur
erfiðar að láta slík slagorð bera árangur, þótt þau verði trylltari
eftir því sem heimur kapítalismans þrengist.
Og hann er að þrengjast með hverju ári sem líður. Á síðustu
árum hefur fjórði hluti mannkynsins, Kínverjar, brotizt undan
áhrifavaldi hinna kapítalistísku stórvelda. í öllum nýlendum
þeirra logar frelsisbarátta almennings svo undir, að drottnararnir
ganga á eldsglóðum. Og hrópin um að kommúnistiskt ofbeldi sé
á ferðinni, hvar sem örlar á frjálslyndri hugsun og andstöðu við
nýlendukúgun 19. aldar geta ekki bjargað kapítalismanum frá
því hruni, sem andstæðurnar innan hans sjálfs eru að búa honum.
Þróunin í heiminum verður ekki stöðvuð.
Allir þeir, sem vilja, geta með íhugun og kynningu séð að það
eru máttarstólpar kapítalismans sem í félagi við ríkisstjórnir
,lýðræðisríkjanna“ standa bak við vígbúnaðinn og reyna að efna
til nýrrar styrjaldar. En hinu skal ekki heldur gleymt, að friðar-
öflin í heiminum hafa aldrei verið sterkari en nú, og skilningur
heilla þjóðfélagsstétta á hinum raunverulega gangi þessara mála