Réttur


Réttur - 01.07.1951, Page 68

Réttur - 01.07.1951, Page 68
B. H. LIDELL HART: Árósin á Noreg ástæður hennar og aðstæður [B. H. Lidell Hart er nafnfrægastur herfræðingur í ensku- mælandi löndum. Mesta frægð hlaut hann fyrir ritgerðir sínar um breytt vígskilyrði í styrjöldum nú á tímum, vegna vélahernaðarins. Á fjórða áratug aldarinnar reri hann öll- um árum að endurskipulagningu brezka hersins og varð ráðunautur hermálaráðherra, er Hore-Belisha tók við því embætti 1938, en reyndist þungur róðurinn og sagði þeim starfa lausum ári síðar. Hann er fæddur 1895; stundaði nám við háskólann í Cambridge; var liðsforingi í brezka hernum í fyrri heims- styrjöldinni; herfræðingur aðalmálgagn brezka Ihaldsflokks- ins, Daily Telegraph, frá 1925 til 1935, en síðan heimsblaðs- ins The Times fram til upphafs síðari heimstyrjaldarinnar, ritstjóri hermála við Encyklopaedia Britannica, brezku al- fræðabókina; á árunum milli stríðanna falin umsjá með samningu kennslubóka landgönguliðs brezka hersins, fyrir- lesari í hersögu við Háskólann í Cambridge 1932—’33. Ritað hefur hann nær þrjá tugi bóka um hernað og hersögu. í þjóðmálum er B. H. Lidell Hart íhaldssamur og birtir greinar sínar einvörðungu í hægrisinnuðum blöðum og tímaritum. Ýmsum kemur vafalaust óvart sú afhjúpun ráðagerða Breta og Frakka, sem fram kemur í grein þessari. Telur höfundur þær ekki lengur til dægurmála, svo að sleppa má áróðri, en beita í stað hans hlutlægni fræðimannsins. Að nokkru leyti getur greinin kallazt eftirmáli Finnagaldursins].

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.