Réttur


Réttur - 01.07.1951, Side 73

Réttur - 01.07.1951, Side 73
RÉTTUR 217 í greinargerð frá 16. september rekur hann allar röksemdir sínar með því, að slíkt skref yrði stigið, og hann nefnir „hernað- araðgerð, hina mikilvægustu frá herstöðulegu sjónarmiði". Hann viðurkenndi, að hún yrði sennilega þess valdandi, að Þjóðverjar réðust á Norðurlöndin, og sagði: „Ef skotið er á óvininn, skýtur hann á móti.“ Einnig sagði hann: „Við vinnum meira en við töpum við þýzka innrás í Noreg og Svíþjóð." (Hins vegar minnist hann ekki á, hvaða hlutskipti biðu þjóða Norðurlanda, ef lönd þeirra yrðu gerð að vígvelli). Meirihluti ráðuneytisins skirrðist þó enn við að skerða hlutleysi Noregs. Þrátt fyrir sannfærandi fortölur Churchills var hikað við að hefjast tafarlaust handa um framkvæmd áætlana hans. Herforingjaráðinu var samt sem áður gefin heimild til þess að „leggja á ráðin um landgöngu í Narvík með allmiklu liði.“ Narvík er endastöð járnbrautarinnar, sem liggur til járnnámanna við Gallivare í Svíþjóð og síðan áfram til Finnlands. Þótt svo væri látið heita, að tilgangur herfararinnar væri að koma Finnlandi til hjálpar, bjó annað og mikilvægara markmið undir; yfirráðin yfir sænsku járnnámunum. í sama mánuði kom Vidkun Quisling, fyrrum landvarnaráðherra, en þá leiðtogi lítils flokks, nazistasinnaðs og algerlega á bandi Þjóðverja, í mikilvæga og óheillavænlega heimsókn til Berlínar. Við komu sína gekk hann á fund Raeders aðmíráls og brýndi fyrir honum hættuna á, að England hernæmi bráðlega Noreg. Hann bað um fé og leynilegan stuðning til handa þeim áformum sínum að grípa völdin í landinu í sínar hendur og steypa norsku stjórninni af stóli. Hann fullyrti, að margir háttsettir norskir liðsforingjar væru þess albúnir að veita honum að málum, meðal þeirra Sundbö ofursti, fyrirliði í Narvík. Þegar hann hefði ráð landsins í hendi sér, hugðist hann fara þess á leit við Þjóðverja, að þeir tækju Noreg undir verndarvæng sinn og yrðu þannig fyrri til en Eng- lendingar um landgöngu. Raeder taldi Hitler á að eiga viðtal við Quisling, og þeir hittust 16. og 18. desember. Greinargerðin um viðtal þeirra ber með sér, að Hitler, að eigin sögn, „sýndist það ákjósanlegast, að Noregur

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.