Réttur


Réttur - 01.07.1951, Page 89

Réttur - 01.07.1951, Page 89
RÉTTUR 233 sókn og Alþýðuflokknum hafa kallað erlendan her inn í landið til að berjast gegn löndum sínum. Það verður varla til minna ætlazt af Heimdellingum en að einnig þeir „bjóði sitt blóð.“ Dýrtíð og atvimnuleysi. Marshalláætlunin gengur eins og í sögu. Nýja vísitalan er komin upp í 151 stig og sú gamla 589. Bátagjaldeyririnn hefur átt drjúgan þátt í þeirri þróun, og koma þær verð- hækkanir þó lítið fram í vísitölunni. Hinsvegar bera þeir, sem ,,bjarga“ átti, bátaútvegsmenn, harla skarðan hlut frá borði. Sem dæmi má nefna vörumagn, sem í útsölu kostaði ca. 7,5 millj. Skiptast kostnaðarliðir þannig: Innkaupsverð Kr. 1.958.000 Álagning bátaútvegsins — 738.000 Verzlunarálagning — 2.413.000 Tollar og skattar — 2.391.000 Samtals kr. 7.550.000 Atvinnuleysi fer sívaxandi. I Reykjavík og Hafnarfirði er mikið atvinnuleysi en alvarlegra er þó ástandið í kaup- stöðunum á Norður-, Vestur- og Austurlandi. í október var fyrsta atvinnuleysisgangan eftir stríð farin í Reykjavík á fund viðskiptamálaráðherra. Var það í tilefni af því að ráðherrann hafði lýst því yfir að hann vissi ekki til að það væri neitt atvinnuleysi. En hinir atvinnulausu áttu líka ýmislegt annað vantalað við þennan ráðherra. Því að það er sannast mála að atvinnuleysið er blátt áfram skipulagt undir forustu hans og félaga hans. Fiskafurðirnar eru flutt- ar út óveikaðar, mikill hluti iðnaðarins stöðvaður með því að láta bankana neita um nauðsynleg rekstrarlán og hús- byggingar stöðvaðar með öllu. Ef fiskurinn væri verkaður hérlendis og iðnaðinum leyft að starfa með fullum afköst-

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.