Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1968, Page 6

Náttúrufræðingurinn - 1968, Page 6
114 NÁTTÚRUFRÆÐIN G U RIN N Sameinuðu þjóðanna, og stariaði næstu 5—6 árin á hennar vegum sem deildarstjóri (chief biologist) á „Instituto de Investigacion de les Recursos Marinos" í Perú. Jafnframt vann hann að áætlanagerð fyrir samtökin um fiskirannsóknir í öðrum Suður-Ameríkulöndum og ferðaðist í því sambandi sem fulltrúi F. A. O. til Argentínu og Chile. Um áramótin 1965—1966 fluttist dr. Hermann til Róma- borgar, ferðaðist á vegum F. A. O. um nálæg Miðjarðarliafsliind og undirbjó áætlun um haf- og fiskirannsóknir i Adenflóa. Til Aden fluttist hann svo í júníbyrjun 1966 til að veita forstöðu liinni nýju hafrannsóknastofnun jrar í borg. Hermann Einarsson tók þátt í og stjórnaði fjölmörgum haf- rannsóknaleiðöngrum. Öðlaðist hann mikla reynslu á því sviði. Fyrstu rannsóknaferðirnar fór hann á stúdentsárunum til hafsvæð- anna umhverfis Færeyjar og íslands. Var það á danska rannsókna- skipinu „Dana,“ sem verið hefur mörgum fiskifræðingum góður skóli. Eftir heimkomuna til íslands tóku við leiðangrar á íslenzkum skipum. Fyrstu árin varð hann að búa við mjög ófullkomin vinnu- skilyrði á leigubátum, en tókst þó að safna ótrúlega miklum efnivið. Segja má, að rannsóknaferðir Hermanns á árunum 1947 og 1948 Iiafi verið upphaf skipulegra sjó- og svifrannsókna hér við land. Sumarið 1954 stjórnaði liann leitarleiðangri togarans „Jóns Þorlákssonar,” er karfamiðin við Austur-Grænland (Jónsmið) voru fyrst uppgötvuð. Undir forystu Flermanns hófst skipuleg síldarleit á varðskipinu „Ægi“ sumarið 1955. Jafnframt lagði hann grundvöll að þeim aðferðum við átu- og síldarrannsóknir á sjó, sem starfs- bræður hans hér hafa síðan notað. Hermann stjórnaði síldarleit á svæðunum norðan og austan íslands í fjögur ár og vann þar ómetanlegt starf fyrir íslenzkan sjávarútveg. Árið 1957 stjórnaði hann leiðöngrum rannsóknaskipsins „Arrar“ í Svartahafi og Mar- marahafi, og á árunum 1960—1964 var hann á rannsóknaskipinu „Bondy“ við athuganir á Perústraumnum og dýralífi undan vestur- strönd Suður-Ameríku. Hermann Einarsson var óvenju afkastamikill vísindamaður og liggur eftir hann mikill fjöldi stórmerkra fræðirita. Hann var liamhleypa við vísindastörf og átti það til að vinna langt fram á nætur, ef viðíangsefnið heillaði hann. Hann kunni framúrskarandi vel til verka við samningu vísindalegra ritgerða. Bar þar margt til: Djúpstæð þekking, leiftrandi gáfur, þjálfun og vísindaleg forvitni.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.