Náttúrufræðingurinn - 1968, Side 25
N ÁTTÚRUFRÆÐIN G URIN N
133
við Steinsholtsá. Aðstoðarmaður lians var Lárus heitinn Guðmunds-
son flugmaður, og var ég einnig með þeim til leiðbeiningar. Við
þær mælingar og útreikning Sigurjóns eltir þeim, styðjast þær áætl-
anir, sem hér verða fram settar um stærð hlaupsins.
Ágúst Böðvarsson, forstöðumaður Landmælinga Islands, ljós-
myndaði Steinsholtsjökul og nágrenni lians úr l'öfti hinn 27. septem-
ber 1967. Eftir þeim ljósmyndum og öðrum eldri, frá 1960, hefur
Ágúst enn fremur gert kortin (5. og 6. nrynd), en eftir þeim kortum
er áætluð stærð hinnar hrundu bergfyllu úr Innstahaus.
Tímasetning atburða
Aðeins á tveimur stöðum, undir Þórólfsfelli og við Markarfljóts-
hrú, var hlaupið tímasett af sjónarvottum, og á hvorugum staðnum
nákvæmlega. En sjálft upphaf þess, hrunið úr Innstahaus, sem eng-
inn maður sá né heyrði, er svo vel tímasett, að ekki skakkar nema
fáum sekúndum.
Þegar eftir Steinsholtsl'erð okkar Árna í Stóru-Mörk, 23. janúar,
sneri ég mér til Ragnars Stefánssonar í jarðeðlisfræðideild Veður-
stofunnar og innti eftir viðbrögðum jarðskjálftamæla á þeim fjórum
stöðum, sem slík tæki eru til hér á landi. Ég fékk greið svör: Jarð-
skjálftamælirinn í Reykjavík var bilaður. Á Akureyri, 240 km frá
Innstahaus, kom ekkert fram á mælinum. Mælirinn í Vík í Mýrdal,
aðeins 40 km frá Innstahaus, sýndi ekki heldur neitt óvenjidegt. En
sá mælir er ónákvæmur og sýnir ekki nærri því eins smáan titring og
hinir. Aðeins mælirinn á Kirkjubæjarklaustri, 75 km frá Innstahaus,
hafði frá tíðindum að segja. — Ragnar Stefánsson skýrir svo frá:
„Jarðhrœring mœld d Kirkjubcejarklaustri 15. janúar 1967. — Kl.
13, 47 mín. og 55 sek. að ísl. miðtíma hefst titringur og stendur yfir í
2 mínútur. Hann samanstendur rnest af yfirborðsbylgjum, og bendir
jiað til, að upptökin séu nálægt yfirborði jarðar. Titringur sem þessi
er fátíður á jarðskjálftablöðum, og eiginlegur jarðskjálfti er hann
ekki. Upptökin er ekki hægt að ákvarða, en þau eru örugglega innan
100 km frá Kirkjubæjarklaustri. Þegar þessa er gætt og eins hins,
hve nálægt hlaupið og titringurinn eru í tíma, verður að teljast afar
líklegt, að titringurinn stali af hruninu í Steinsholti. Ef svo er, hefur
orkan, sem leystist úr læðingi í líki jarðskjálftabylgna verið 1016—
1017 erg.“