Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1968, Page 30

Náttúrufræðingurinn - 1968, Page 30
138 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN í fjárleitum Eyfellinga á haustin ganga jafnan tveir menn á Innsta- haus og finna þar stundum fé. Að undanförnu hefur Ragnar Guð- jónsson í Kvíhólma farið í þessa göngu, og haustið 1966 var Helgi Friðþjófsson í Seljalandsseli með honum. Náði ég tali af þeim báð- um s. 1. sumar. Ragnar hefur komið hæst upp á Innstahaus oftar en hann kann tölu á. Fyrir eitthvað sjö eða átta árum tók hann þar el tir sprungu í jörðu. Hún lá samsíða austurbrún fjallsins og á að gizka 30 m frá henni. Ragnar telur sprunguna hafa farið greinilega víkk- andi ár lrá ári, en þó litlu eða engu víðari haustið 1966 en 65. Var þá orðið óárennilegt að stökkva yfir hana. Þessa sprungu má greina sem örmjóa rák á flugmynd Landmælinganna frá 1960. Samkvæmt myndinni var hún um 100 m löng, og lega hennar og stefna kemur vel heim við lýsingu þeirra Ragnars og Helga. Þegar ég kom upp á Innstahaus, 30. júní 1967, gat þar enn að líta norðurhluta þessarar sprungu, á að gizka helming hennar, en sunnar hafði öll spildan austan sprungunnar hrunið niður. Þessi sprungu- endi afmarkar allt að 20 m breiða spildu, sem skagar nú fram í brún hrunstálsins. Vissulega má búast við, að einnig sú spilda hrynji áður en mörg ár líða. En þó að hún fari öll í einu lagi, verður það hrun smávægilegt hjá því, sem þarna varð 15. janúar. Laus melur er í sprungubörmunum fáeina metra niður, en berg þar undir. Niðri í berginu sýndist mér breidd sprungunnar 20—30 cm, en hrunið hefur úr melbökkunum, svo að efst verður breiddin 1—2 m. Sams konar melur, grýttur á yfirborði, en mest leir þegar neðar kemur, er víðar uppi á Innstahausi og myndar sums staðar meira en 5 m þykkt lag efst í nýja hrunstálinu. Hann er bersýnilega jökulruðningur að upp- runa og ekki yngri en frá ísöld, því að síðan hefur jökull aldrei gengið yfir Innstahaus. 2. Hrunurð’in Hrunurðin (b á 4. mynd) undir brotsárinu í Innstahaus jjekur 28 ha svæði. Ætla má, að talsverður meirihluti hennar, vesturhlut- inn, hvíli á bergi, en austurjaðarinn liggur á jökli. Urðin er eiu samfellt grjóthrúgald með bröttum brúnum út af til allra hliða o» ærið mishæðótt með bröttum kömbum og strýtum. Hún greinist heldur óglöggt í þrjár meginöldur, sem liggja þvert við hrunstefn- unni, og er sú í miðið langstærst, en hver alda er aftur samsett úr óreglulegum haugum úr eggjagrjóti og stórbjörgum upp í marga
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.