Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1968, Page 74

Náttúrufræðingurinn - 1968, Page 74
182 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN örugglega að yxu við strendur landsins, en hann hafði áður grand- skoðað öll þau söfn íslenzkra sæþörunga, sem honum voru tiltæk, auk þess sem hann byggði á eigin rannsóknum, endurskoðaði nafn- giftir og athugaði vaxtarstaði hverrar einstakrar tegundar og út- breiðslu hér við land. Þar var getið fjölmargra tegunda, sem ekki höfðu fundizt hér fyrr en Helgi hóf rannsóknir sínar, m. a. fjögurra tegunda, sem voru nýjar fyrir vísindin, auk margra afbrigða. Þessar ritgerðir skrifaði Helgi á ensku og er því fyrsti íslenzki grasafræðing- urinn, sem birtir ritgerðir sínar á alþjóðlegu máli. í heild bera ritgerðirnar vitni um sérstaka vandvirkni og samvizkusemi, enda vöktu þær töluverða athygli, svo segja má að eftir birtingu þeirra hafi sæþörungaflóra íslands verið betur rannsökuð en flestra annara landa og höfundur þeirra verið orðinn þekktur vísindamaður á sínu sviði. Það er þess vegna ekki nema eðlilegt, að honum sé nú falið að fara yfir og vinna úr þeim þörungagögnum, sem safnað hafði verið í leiðangri nokkrum til Austur-Grænlands árin 1898—99. Nið- urstöður þeirra rannsókna birti Helgi í Meddelelser om Grönland árið 1904, en þar gerir hann jafnframt grein fyrir vandlegri endur- skoðun sinni á nokkrum sæþörungaættkvíslum á öllu Grænlandi. Árið eltir skrifar hann, ásamt danska sæþörungafræðingnum F. Börgesen, yfirlitsgrein þar sem gerður er nákvæmur samanburður á sæþörungalífi allmargra staða í norðanverðu Atlantshafi og íshaf- inu norðurundan, og birtist sú ritgerð í safnritinu Botany of the Faroes. Á Hafnarárunum skrifaði Helgi nokkrar fræðslugreinar um grasa- fræðileg efni í íslenzk tímarit, t. d. í Eimreiðina og Tímarit hins íslenzka bókmenntafélags. Merkastar þeirra eru tvímælalaust grein um Jarðeplasýkina í Eimreiðinni 1896, grein Um skóga og áhrif þeirra á loltslagið í Tímariti Hins ísl. bókmenntafélags 1898 og greinin Vetrarbúningur plantnanna í sania riti 1899. í síðasttöldu ritgerðinni er íslenzka orðið fruma notað á prenti í fyrsta sinn svo niér sé kunnugt og er Helgi sennilega höfundur þess. Þá skrifaði Helgi grein um mosaþembur í Isafold 1895, Jxtr sem hann leitast við að gera almenningi ljóst að mosaþembur, sérstaklega á láglendi, hafi mikilvæga þýðingu í gróðurmyndun landsins því þær grói smám saman upp og verði að beitarlandi og jalnvel slæg ju. Því megi alls ekki rífa mosann npp og nota hann til eldiviðar, eins og sums staðar Jxir sem menn nenni ekki að afla eldiviðar, en séu teknir til
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.