Náttúrufræðingurinn - 1968, Síða 75
NATTURUFRÆÐINGURINN
183
við að rífa mosa undir pottinn eftir að hafa fyrst höggvið og brennt
hverri hríslu, og síðan eytt lyngi og víði á sama hátt. 1905 kom líka
út hjá Hinu íslenzka bókmenntafélagi lítil bók, Ættgengi og kyn-
bætur, eftir danska erfðafræðinginn F. Kölpin Ravn og Jtýdd á ís-
lenzku af Helga Jónssyni. Erfðafræði var Jrá mjög ung lræðigrein
og hafði ekkert verið um hana skrifað á íslenzku. Bókinni fyjgdi því
þriggja blaðsíðna skrá yfir nýyrði, sem Helgi hefur líklega gert flest
sjállur, og hafa mörg Jjeirra náð að festast í málinu, svo sem stökk-
breyting og litni.
Sama árið og Helgi flytur heim til íslands, árið 1906, kemur út í
Kaupmannahöfn á vegum Hins íslenzka bókmenntafélags fyrri hluti
bókar eftir hann, sem nefnist Bygging og líf plantna, grasalræði, og
var hér um að ræða kennslubók fyrir almenning. í formála bókar-
innar segir höfundur m. a.: „Bókin er ekki sniðin eftirþörfum neinna
skóla, en jeg ætlast til að hún sje fræðslulind lyrir þá, sem langar
til að fræðast um líf plantnanna, enda er hún þannig rituð, að hver
skynsamur maður á að geta lesið hana sjer til gagns. Bókin ætti og
að vera kærkomin öllura, sem lást við að kenna grasalræði hjer á
landi.“ Síðari hluti bókarinnar kom svo út árið eftir. Allur fyrri
hluti bókarinnar hlýtur að vera skrifaður í Höfn og sennilega eitt-
hvaðaf seinni hluta hennar líka, Jdó formálinn sé dagsettur í Reykja-
vík í júnímánuði 1907. Mestur hluti bókarinnar er því ávöxtur
hinna frjóu Hafnarára Helga, ef hún er það Jrá ekki öll. Bygging og
líf plantna er stór bók, eða sléttar 300 síður. Til samanburðar má
geta Jress, að Plönturnar eftir Stefán Stefánsson, sem koniu út 1913,
eru 165 síður og af Jreim I jalla 50 síður um skyldleika og niðurskipun
plantnanna, eða systematik, en Helgi sleppir henni alveg í sinni
bók og fjallar þar eingöngu um byggingu og líf plantnanna, eins og
nafn hennar ber með sér, eða almenna grasafræði öðru nafni. Bók
Helga er Jrví miklu nákvæmari og einstökum atriðum gerð betri skil,
Jió framsetningin sé kannske sums staðar stirðari en hjá Stefáni í
Plöntunum. En Helgi er greinilega að skrila l'yrir fullorðið og
Jnoskað fólk, grasafræði hans gæti verið háskólakennslubók fyrir
byrjendur, en Plönturnar eru skrifaðar fyrir unglinga. Helgi byggir
sína bók meir á lífeðlisfræðilegum og ökólógískum grunni, og kem-
ur jafnvel inn á erfðafræði, en þær greinar grasalræðinnar voru þá
ungar að árum og lítt kunnar hér, en Helgi hafði góða undirstöðu-
menntun í sínu fagi og var því vel heima í öllum nýjungum. Það