Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1968, Page 81

Náttúrufræðingurinn - 1968, Page 81
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 189 ljúka við doktorsritgerð sína. Breytingin írá þokkalegri eða ágætri vinnuaðstöðu erlendis til aðstöðuleysisins og allsleysisins hér heima hefur verið gífurleg þá — og er reyndar ennþá, því miður. Til þess að afla sér lífsviðurværis þurfti Helgi að fást við kennslu það sem eltir var ævinnar og hafði takmarkaðan tíma aflögu til vísindastarfa, jafn athugull og vandvirkur vísindamaður og hann var, og jafn erfitt og ósýnt sent honum virðist hafa verið um kennslu, samkvæmt upplýsingum gamalla nemenda hans. Allt þetta mun hafa lagzt nokkuð þungt á Helga og hann orðið nokkuð einrænn. Hann var enginn lausungarmaður í lund, var hæglátur, stilltur og gætinn, en seinn til að gleyma ef honum þótti sér misboðið, en lrverjum manni tryggari og vinafastari þar sem hann tók því. Hann gat líka verið kátur og spaugsamur þegar því var að skipta, en var ætíð nærgætinn gagnvart öðrurn. Helgi iðkaði sín vísindi í kyrrþei, liélt þar sína leið, en vantaði gjörsamlega alla hæfileika til að láta á sér bera eða trana sér fram. Hann skil'ti sér því lítið af opinberum málum og hélt sig að mestu frá félagslífi. Þó var hann í hartnær tuttugu ár gjald- keri Hins íslenzka náttúrnfræðifélags og hafði áður en hann kom heim verið fulltrúi þess í Kaupmannahöfn í mörg ár. Sent stjórnar- maður félagsins var Helgi um árabil umsjónarmaður grasasafns félagsins, raðaði því og skipulagði það og vann þar margt handtak endurgjaldslaust. Þannig eru plöntur, sem Helgi safnaði á ferðum sínum víðs vegar um land, ennþá ein aðaluppistaðan í því safni, sem að vísu hefur vaxið og margfaldast síðan og er nú í eigu Grasafræði- deildar Náttúrufræðistofnunar fslands. Helgi átti líka þátt í því, ásarnt Einari Helgasyni garðyrkjumanni, að setja á stofn vísi að grasgarði í gróðrarstöðinni í Reykjavík. Á aðalfundi Náttúrufræðifélagsins 1915 var samþykkt að stofna sjóð til minningar um Eggert Ólafsson til að stuðla að útgáfu náttúrufræðirita og styrkja unga og efnilega náttúrufræðinga. Helgi var frá upphafi gjaldkeri sjóðs þessa og bar hag hans mjög fyrir brjósti og reyndi að efla hann á alla lund, einkum mun hann hafa haft í liuga að sjóðurinn yrði orðinn öflugur og einhvers megnugur á 200 ára afmæli Eggerts 1926. Ævikjör Helga sjálfs og aðstaða hans til rannsóknarstarfa sýndu honum það bezt, hve mikil þörf var á að greiða götu ungra náttúrufræðinga. Haustið 1924 sótti Helgi unr styrk frá Alþingi til að gefa út minningarrit um Eggert Ólafsson á 200 ára afmælinu, en undirbúning hafði hann þá hafið.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.