Náttúrufræðingurinn - 1968, Page 133
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
241
Október. Ingólfur Davíðsson: Um slæðinga í íslenzku gróðurríki.
Nóvember. Guðmundur E. Sigvaldason: Áhrif vatns á gerð gosefna.
Fræðsluferðir
Farnar voru fjórar fræðsluferðir, þrjár stuttar ferðir, sem tóku einn dag, og
ein þriggja daga ferð.
Fyrsta fræðsluferð sumarsins var farin fimmtudaginn 19. maí og farið suður
með Kleifarvatni og litið fyrst til grasa (vetrarblóm, sverðmosi) og skoðað
gabbt i í hraunkúlum við Grænavatn. Þá var gengið á Krísuvíkurberg og fugla-
líf skoðað og jafnframt liugað að jarðmyndunum. Síðan var haldið í Ögmund-
arhraun og skoðaðar bæjartættur, sem greyptar eru í það. Á heimleið var ekið
um Grindavík og litið á jarðmyndanir. Veður var gott, en í lok ferðarinnar
gerði mikla dembu og urðu margir blautir. Þátttakendur voru um 80. Leið-
beinendur voru Guðmundur Kjartansson og Þorleifur Einarsson um jarðfræði,
Bergþór Jóhannsson um grasafræði, Árni Waag um fugla og Gísli Gestsson um
fornleifar.
Önnur ferðin var farin um Snæfellsnes og stóð hún í þrjá daga, 24.-26. júní,
og var það aðalferð sumarsins. Fyrsta daginn, föstudag, var ekið að Búðum og
gist þar í tjöldum. Á leiðinni var litið á jökulgarða hjá Skorrholti i Melasveit,
granófýr úr Flyðrum í Hafnarfjalli og síðan skoðaður hvirfill jarðlagaandhverlu
við Borgarncs. Næst var stanzað við Hítará og skoðaðir skessukatlar. Því næst
var gengið að Rauðamelsölkeldu og brögðuðu allir ölkelduvatn. Þá var stanzað
við Hofgarða og tjarnarblaðka, sú sjaldgæfa jurt, skoðuð. Ekið var að Lýsuhóli
og litið á kalkútfellingar svo og gabbró og granófýr. Um kviildið var litazt um
í Búðahrauni.
Laugardaginn var ekið fyrir Jökul og að Selvallavatni og gist þar. Á leiðinni
var litið á melasól í skriðum í Breiðavík og Arnarstapi skoðaður og síðan Lón-
drangar og hugað að fugli í Svalþúfu. Síðan var ekið í Grundarfjörð og aðeins
skotizt úr bílunum í Hólahólum, Enni og Búlandshöfða. Gengið var upp í
Stöð (Brimlárhöfða) og Búlandshöfðalögin athuguð. Þá var haldið í Kolgrafa-
fjörð og keilugangar skoðaðir í Hrafnkelsstaðabotni og gabbró í Kolgrafamúla.
Að loknum snæðingi að Selvöllum voru tilkynnt úrslit í veðurspákeppni og
reyndist Haraldur Guðmundsson vera bezti spámaðurinn. Áður en lagzt var til
hvílu itorfðu flestir á sólarlag af Grákúlu en aðrir á sólarupprás.
Á sunnudagsmorgun var fyrst stanzað við Gríshólsá og litið á bólstraberg
neðst í grágrýti, en síðan var gengið á Drápuhlíðarfjall og skoðað líparít og
andesít svo og plöntusteingervingar. Síðan var ekið um Skógarströnd og Bröttu-
brekku til Hreðavatns og setzt að kaffidrykkju og ræður haldnar. Komið var
til Reykjav'íkur um 8-leytið um kvöldið. Veður var gott, þó gekk á með skúr-
um fyrsta daginn og fyrri liluta annars dags var súld, svo að ekki sást til jökuls-
ins. Þátttakendur voru um 100. Fararstjóri var Þorleifur Einarsson, en leið-
beinendur voru Haraldur Sigurðsson, Einar B. Pálsson og Bergþór Jóhannsson.
Þriðja ferðin var liálfsdags grasafræðiferð og var luin farin sunnudaginn
J0. júlí. Ekið var suður fyrir Hafnarfjörð og farið úr bílunum við Ás og síðan
gengið meðfram Ástjörn og athugaður mýra- og tjarnagróður. Þá var gengið
um hraunið og hugað að gróðri þar og í hraunbrúninni. Veður var mjög gott.