Samvinnan - 01.03.1929, Page 8

Samvinnan - 01.03.1929, Page 8
2 SAMVINNAN og margt atgerfis- og gáfumanna fyrr og síðar, enda til stórra að telja í ættir fram. Gekk það sízt til þurðar með Einari. Fátt verður hér sagt af uppvexti Einars og menn- ingu í æsku. Móður sína missti hann er hann var 7 vetra gamall og ólst hann síðan upp hjá föður sínum og stjúp- móður til þess er hann var 15 vetra. Þá réðst hann til Indriða gullsmiðs Þorsteinssonar á Víðivöllum í Fnjóska- dal til gullsmíðanáms. Mun hugur Einars snemma hafa hneigzt til verklegra iðna, enda annars ef til vill minni kostur um sinn. Var og þess háttar andi að lifna með þjóðinni, árgott í landi og margt rætt og reynt, er verða mætti til viðréttingar þjóðarhagnum og leiða mætti til nýrra dáða. Eftir fjögurra ára nám hjá Indriða gullsmið réðst Einar utan, 19 vetra gamall, til þess að framast í iðn sinni og sjá sig um. Dvaldi hann í Kaupmannahöfn vetur- inn 1847—1848 og naut þá kennslu nokkurrar við Fjöl- listaskólann (Polytekniska skólann). Eigi varð af því, að Einar dveldi lengur ytra. Mun því hafa valdið heilsu- brestur nokkur, er hann kenndi þá um veturinn, og ef til vill hitt jafnframt, að 1 þessu hófst ófriður milli Dan- merkur og hertogadæmanna og víða urðu þá róstur í Norðurálfu (Febrúarbyltingin). Hvarf Einar heim um sumarið. Næstu fjögur ár var Einar á lausum kili og mun þá hafa haft í hyggju að setjast að í Eskifirði, sem var höfuðkauptún á Austfjörðum í þann mund, og stunda þar iðn sína. Eigi mun honum þó hafa þótt það ráðlegt, er á átti að herða. Dvaldi hann á Austurlandi um 4 ára skeið, og fékkst meðal annars við kennslu. Svo virðist sem sá tími hafi orðið Einari til allmikils þroska. Víst er það, að hugur hans hneigðist nú eindregið að búskap og búnaðar framkvæmdum. Mun honum hafa þótt það horfa til meiri afdrifa heldur en að fást við gullsmíðaföndur undir hand- arjaðrí hinnar full-dönsku selstöðuverzlunar í kaupstaðar- holunni í Eskifirði. Árið 1853 kvæntist Einar og gekk að eiga Margréti, dóttur Guttorms prófasts Vigfússonar í Vallanesi. Fluttist hann það sumar að austan alfarí og
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.