Samvinnan - 01.03.1929, Page 51
SAMVINNAN
45
sér markaði, komið saman á vissum dögum og vissum
stöðum til þess að skiptast á vörum sínum. Markaðimir
voru áður mikilvægur þáttur viðskiptanna, og enn í dag
eru seldar og keyptar vörur fyrir 400 miljónir árlega á
markaðinum í Nischni-Novgorod, og þar mætast 2—3
miljónir manna frá öllum löndum Asíu og Austur-Ev-
rópu.
Samt er það svo, að markaðir missa nú á tímum meir
og meir gildi sitt, vegna þess að menn láta sér ekki nægja
að eiga viðskipti saman endrum og eins. 1 stað markað-
anna eru komnar kauphallir, þar sem viðskipti fara
fram án afláts. Mexm greina á milli tvenns konar kaup-
halla, þai’ sem verzlað er með vörur og þar sem verzlað
er með verðbréf. I kauphöllunum fara fram stórkostleg
viðskipti, og þar er starfað af mesta kappi. Gengi verð-
bréfa og vöruverð er skráð og auglýst í sífellu, það kalla
menn v e r ð sk r á n i n g. Sú skráning ræður mjög miklu
í viðskiptunum, og er hún því framkvæmd af mestu ná-
kvæmni, eftir vandlega athugun. Til þess að viðskipti gi-.ti
farið fram, verða þau að ganga í gegnum hendur v ö r u-
m i ð 1 a, eða v e r ð m i ð 1 a, þegar um verðbréf er að
ræða. I sumum löndum hafa verðmiðlar lögbundin einka-
leyfi til starfs síns.
Viðskiptin fara annaðhvort þannig fram, að hönd
selur hendi, eða keypt er og selt fyrirfram, og er það
miklu algengai’a. Seljandi selur t. d. við gangverði dags-
ins í dag 10000 hl. koms, sem hann lofar að láta af hendi
í mánaðarlok. Sennilega á hann ekki til eitt einasta kom,
þegar hann selur. En það gerir ekkert til. Þegar að því
kemur að láta vöruna af hendi, veitist honum auðvelt að
finna hana á markaðinum. Seljandanum er líkt farið og
vatnsberanum, sem selur það vatn í dag, sem hann ætlar
að skila á morgun eða seinna. Vatnið hefir hann að vísu
ekki við höndina, en nóg er af því í ánni, og þangað fer
hann að sækja það, þegar tími er til kominn. Eins fer sá
að, sem selur fyrirfram; þegar þörfin kallar, sækir hann
vöruna á markaðinn.