Samvinnan - 01.03.1929, Page 14
Hagfræði.
Eftir Charles Gide.
ÖNNUR BÓK
Viðskiptin.
í fyrstu útgáfum þessarar bókar var kaflinn um við-
skiptin felldur saman við kaflann um framleiðsluna. Svo
var litið á, að viðskiptin hefði ekki neitt sérstakt tak-
mark í sjálfu sér; vöruskipti og lánsverzlun væri í raun-
inni einn þáttur úr skipulagi framleiðslunnar, hliðstæð-
ur við samtök og verkaskiptingu; tilgangurinn væri sá
sami, að létta framleiðslustörfin.
En nú tökum vér upp aðra skiptingu og ræðum við-
skiptin sér, út af fyrir sig. Bæði verður efnið ljósara við
þá aðgreiningu, og hér er líka um nýjar starfstegundir
að ræða. Nytsemdirnar eru þegar til orðnar, eftir er að
flytja þær og dreifa þeim. Þær skipta ekki framar um
1 ö g u n eða mynd, heldur e i g a n d a. Iðnaðurinn hef-
ir lagt á þær síðasta smiðshöggið, en þá er eftir að verzla
með þær og hagnýta þær í viðskiptalífinu* 1).
x) í kennslubók J. B. S a y s eru viðskiptin rædd i sambandi
við framleiðsluna. En i sumum nýjum kennslubókum
eru þau tekin til meðferðar í sambandi við eignaskipt-
i n g u n a. Svo er gert með það fyrir augum, að viðskiptin fela
í sér afhending eigna af einni hönd á aðra. En eignaskiptingin
sjálf er í raun og veru ein tegund viðskipta, hvort sem hún kem-
ur fram í launagreiðslum, jarðarleigu, fjárvöxtum eða öðru.
Um þetta má lesa nánar í ágætri bók, Leerbock der
Staatshuishoul dkunde, eftir hollenzka prófessorinn N.
P. Pierson. (Bókin er til á ensku og heitir Principles of
Economics).