Samvinnan - 01.03.1929, Síða 74
68
S AMVINNAN
eina hina helztu framför í verzlunarmálum Islendinga hin
síðustu árin, að hafa náð beinum samböndum við eina
mestu iðnaðarþjóð álfunnar. Áður gengu öll slík viðskipti
um greipar danskra heildsala.
1917 voni sambandsfélögin orðin 15 og nú tók þeim
óðum að fjölga, enda var aðstaða Sambandsins gerbreytt
frá því, sem var 10 árum áður. Þá byrjaði það að
selja eina tegund útflutningsvörunnai'. Nú var það orðið
stærsta heildsala íslenzkra landbúnaðarafurða á erlendum
markaði og var smátt og smátt að þokast að því marki að
verða stærsta heildsala á fslandi fyrir erlendar vörur, með
útbú og sambönd við helztu verksmiðjur og framleiðslu-
fyrirtæki erlendis. — Fjölgaði sambandsfélögunum mjög í
lok styrjaldarinnar. Er flestum enn í minni þeir örðugleik-
ar í verzlun og öllum viðskiptum, sem þá dundu yfir
skömmu síðar og settu á höfuðið mikinn fjölda stórra
verzlunar- og framleiðslufyrirtækja og skildu við önnur í
hinni mestu þröng. Verður ekki með tölum talið hvílík
hjálparhella Sambandið reyndist þá öllum þorra bænda í
landinu. Á stríðstímanum og í lok hans var mikil breyting
á orðin um verzlun landsins. Selstöðuverzlanirnar dönsku
voru horfnar að kalla og verzlunin innlend orðin að mestu.
En það er vafalaust, að ef Sambandsins hefði ekki notið
við eftir 1920, þegai' atvinnu- og viðskiptalíf voi-t lá sem
í rústum eftir hinar ógurlegu verðsveiflur og gengis-
hrun krónunnar, þá hefði íslenzk viðskipti orðið auðhrifin
bráð erlendra fésýslumanna, og hefði það tjón orðið drjúg-
um meira hinu fyrra. Að svo fór ekki, má að miklu leyti
þakka giftu þeirra manna, sem þá stýrðu efnum sam-
vinnufélaganna, en ekki sízt því, að þeir áttu við að
styðjast öfluga samvinnuheildsölu. Án hennar hefði bar-
áttan orðið tvísýn víða. Má telja, að vel hafi fram úr
raknað, og stendur nú samvinnan hér á landi traustari
fótum en nokkru sinni fyrr. í ársbyrjun 1928 voru
sambandsfélögin 38 að tölu, með um 7000 félags-
mönnum. Af félögum þessum voru tvö hrein fram-
leiðslufélög (sláturfélög). 4 eingöngu neytandafélög.